Viðskipti innlent

Setur 100 milljónir í að leið­rétta er­lendan frétta­flutning um eld­gosin

Lovísa Arnardóttir skrifar
Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra segir afar áríðandi að réttar upplýsingar komi fram um stöðuna, hérlendis og erlendis.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra segir afar áríðandi að réttar upplýsingar komi fram um stöðuna, hérlendis og erlendis. Vísir/Vilhelm og skjáskot

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála- og viðskiptaráðherra, hefur sett 100 milljónir í markaðssetningu til að svara og leiðrétta erlendan fréttaflutning um stöðuna á Íslandi í kjölfar eldsumbrotanna síðustu mánuði. Peningurinn rennur til Íslandsstofu, áhrifavalda og fleiri aðila.

„Það er svo mikilvægt að réttar upplýsingar komi,“ segir Lilja Dögg og vísar til fréttar á vef BBC þar sem fyrirsögnin var á þann veg að hér á landi hefði verið lýst yfir neyðarástandi. Sem er auðvitað tilvísun í það að neyðarstig hafi verið sett á. 

Í öðrum fréttum síðustu daga hefur til dæmis verið talað um áhrif eldgosanna á ferðaþjónustuna og spurt hvort einhver vilji raunverulega til Íslands og vísað til rýmingar.

„Ferðaþjónustan er sú atvinnugrein sem skapar okkur mestan gjaldeyri, eða um 35 prósent,“ segir Lilja Dögg og að samhliða þessum mikilvæga iðnaði sé stöðugt flæði á gjaldeyrismarkað sem dýpki gjaldeyrismarkaðinn okkar og minnkar sveiflur. Lilja ræddi eldsumbrotin og stöðu ferðaþjónustunnar í Bítinu á Bylgjunni í dag.

„Við erum búin að ganga í gegnum miklar jarðhræringar á Reykjanesinu og við erum ekki búin að finna loðnuna. Fyrir 25 árum hefði gjaldmiðillinn alltaf tekið högg en núna, vegna ferðaþjónustunnar meðal annars, er hann stöðugri af því að það er stöðugt innflæði.“

Fyrirsögn á frétt á vef Wasthington Post var: Íslenskt eldfjall gýs aftur, himininn appelsínugulur og rýmingar nauðsynlegarSkjáskot/Washington Post

Lilja Dögg sagði ferðaþjónustuna eina af fjórum mikilvægum stoðum samfélagsins sem tryggði þessa stöðu. Hinar þrjár væru orka og iðnaður, sjávarútvegur og skapandi greinar og hugverkaiðnaður.

Ísland skorar hátt

Hún fór einnig yfir stöðuna hvað varðar ferðaþjónustustefnuna sem hún kynnti í fyrra og gildir til ársins 2030. Hún segir áríðandi að slík stefna sé gerð og unnin í sátt við bæði fólk og fyrirtæki. Þau kanni til dæmis hvernig fólki líði með heimsókn sína til landsins og með þjónustu þeirra fyrirtækja sem þau nýta og að meðaltali fái Ísland 82 stig af 100.

Fyrirsögn við frétt á vef breska miðilsins BBC gæti verið þýtt sem: Ofsafenginn eldfjallablossi hrindir af stað neyðarástandi. Skjáskot/BBC

Lilja Dögg setti samhliða útgáfu stefnunnar af stað sjö vinnuhópa sem skoða sérstaka anga hennar. Sem dæmi skoða þau nýsköpun, uppbyggingu áfangastaða, menntun í ferðaþjónustu og menningu.

Síðustu vikur hefur hún farið í hringferð um landið þar sem hún hefur kynnt áherslur stefnunnar og segir að það sem alltaf standi upp úr séu samgöngur og staða þeirra.

Hægt er að hlusta á viðtalið við hana hér að ofan.

Milljónirnar sem Lilja hefur úthlutað renna til Íslandsstofu en ekki Ferðamálastofu eins og fyrst kom fram í fréttinni. Leiðrétt klukkan 11:02 þann 21.3.2024.


Tengdar fréttir

Vinna hafin við nýjan Grindavíkurveg

Vinna hófst í dag við að leggja veg yfir hraunið sem rann yfir Grindavíkurveg í eldgosinu sem nú stendur yfir. Jón Haukur Steingrímsson jarðverkfræðingur hjá Eflu telur að vegkaflinn verði um 300 til 400 metrar á lengd. Verkið mun taka nokkra daga.

Vísbendingar um að gosið geti varað lengi

Virkni eldgossins við Sundhnúk er enn stöðug nú þegar hátt í fjórir sólarhringar eru frá því það hófst. Jarðeðlisfræðingur segir vísbendingar um að þetta eldgos gæti orðið svipað þeim sem urðu í Fagradalsfjalli og því varað lengur.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×