Viðskipti innlent

Hitnar í fast­eigna­markaði vegna í­búða­kaupa Grind­víkinga

Atli Ísleifsson skrifar
HMS segir fasteignaviðskipti nú vera drifin áfram af nýbyggingum, en hlutdeild þeirra í kaupsamningum hafi ekki verið jafnmikil á síðustu mánuðum og frá því að mælingar HMS hófust árið 2006.
HMS segir fasteignaviðskipti nú vera drifin áfram af nýbyggingum, en hlutdeild þeirra í kaupsamningum hafi ekki verið jafnmikil á síðustu mánuðum og frá því að mælingar HMS hófust árið 2006. Vísir/Vilhelm

Svo virðist sem fasteignamarkaðurinn hafi hitnað í febrúar, en vísitala íbúðaverðs og gögn um fasteignaauglýsingar gefa vísbendingu um aukna virkni og hærra íbúðaverð. Breytingin er mest í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.

Þetta kemur fram í nýrri mánaðaskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, en stofnunin telur að íbúðakaup Grindvíkinga hafi haft þessi áhrif á markaðinn.

Í skýrslunni segir að markaðurinn hafi hins vegar farið nokkuð rólega í stað í janúar, þar sem kaupsamningum hafi fækkað á milli mánaða í öllum landshlutum. Þó hafi kaupsamningarnir fleiri en í janúar á síðasta ári.

Leiguverð hækkar umfram almennt verðlag

Fasteignaviðskipti eru nú drifin áfram af nýbyggingum og hefur hlutdeild þeirra í kaupsamningum ekki verið jafnmikil á síðustu mánuðum og frá því að mælingar HMS hófust árið 2006.

Einnig eru merki um viðsnúning á leigumarkaði, þar sem leiguverð hækkar hratt umfram almennt verðlag. Einnig bendir leigumarkaðskönnun HMS til þess að staða leigjenda hafi versnað á síðasta ári.

„Minni breytileiki er á leiguverði stærri íbúða eftir póstnúmerum, sem bendir til þess að leigjendur þeirra sækist ekki jafnmikið í að búa miðsvæðis í Reykjavík og leigjendur minni íbúða.

Lánamarkaðurinn sýnir lítils háttar aukningu í hreinum nýjum útlánum á milli desember og janúar, þrátt fyrir að kaupsamningum fækkaði milli mánaða. Þetta bendir til aukinnar skuldsetningar fasteignakaupenda og að þeir séu háðari lánsfjármögnun en síðustu misseri.

Byggingarmarkaðurinn hefur dregist saman á síðustu mánuðum, en fyrstu niðurstöður úr nýjustu íbúðatalningu HMS sýna að framkvæmdum hafi fækkað á síðustu 12 mánuðum. Á sama tíma hefur atvinnulausum fjölgað í byggingariðnaði.

Færri börn og öldrun þjóðar kallar á fleiri íbúðir. Greining HMS á íbúðaþörf sýnir að færri íbúar búa nú í hverri íbúð en fyrir 30 árum síðan. Hins vegar bendir fækkun barna og fjölgun íbúa á efri árum til þess að fullorðnir búi þrengra en áður,“ segir á vef HMS.

Mun fleiri fasteignir teknar úr sölu 

Í skýrslunni segir ennfremur að gögn um fasteignaauglýsingar bendi til að miklar breytingar hafi átt sér stað í umsvifum á fasteignamarkaði í febrúar. 

„Um 1.400 auglýstar fasteignir voru teknar úr sölu í febrúar og voru þær helmingi fleiri en í janúar. Hlutfallslega átti mesta breytingin sér stað í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.

Vísbendingar um verðþrýsting má einnig sjá í nýrri vísitölu íbúðaverðs, sem HMS kynnti þriðjudaginn 19. mars. Hækkun vísitölunnar um 1,9 prósent á milli mánaða í febrúar er að mestu leyti tilkomin vegna verðhækkunar á fjölbýli, en vísitala fjölbýlis á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,1%. Hafa ber þó í huga að sveiflur eru á nýrri vísitölu íbúðaverðs og undirvísitölum hennar á milli mánaða, en vísitala fjölbýlis á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,0% á tveimur mánuðum í febrúar.

Vísitala fjölbýlis á landsbyggðinni hækkaði sérstaklega mikið, eða um 6,4% á milli mánaða. Þessi hækkun er fyrst og fremst tilkomin vegna aukinnar virkni á fasteignamarkaðnum á Suðvesturhorni landsins og voru kaupsamningar í Reykjanesbæ að minnsta kosti þrefalt fleiri í febrúar en í janúarmánuði,“ segir í skýrslunni.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×