Viðskipti innlent

Tæp­lega þriggja milljarða króna viðsnúningur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sveinbjörn Indriðason er forstjóri Isavia
Sveinbjörn Indriðason er forstjóri Isavia Vísir/Vilhelm

Rekstrarafkoma samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á árinu 2023 var jákvæð um 8,1 milljarð króna samanborið við jákvæða rekstrarafkomu upp á 5,2 milljarða króna árið 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu Isavia vegna nýbirts ársreiknings.

Tekjur jukust um 23% eða 8,6 milljarða króna og námu 45,1 milljarði króna. Farþegar um Keflavíkurflugvöll voru tæplega 7,8 milljón í fyrra samanborið við um 6,1 milljón árið 2022.

Ef horft er til heildarafkomu ársins var hún jákvæð um 2,1 milljarð króna samanborið við neikvæða heildarafkomu upp á 617 milljónir króna árið 2022. Það svarar til jákvæðs viðsnúnings upp á rúma 2,7 milljarða króna. Þar munaði meðal annars um jákvæða gengisáhrif vegna langtímalána sem námu um 180 milljónum króna á árinu 2023 samanborið við neikvæð gengisáhrif upp á 868 milljónir króna árið á undan.

„Árið 2023 var í meginatriðum í takt við okkar væntingar. Við fundum vissulega fyrir áhrifum efnahagsumhverfisins á neyslu almennings og eldsumbrotin á Reykjanesskaganum en engu að síður tókst að mínu mati afar vel til við að mæta þeim áhrifum í rekstrinum“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. 

„Svo hafa þær áskoranir sem hafa fylgt því að vera með eldsumbrotin í bakgarðinum okkar síst minnkað nú á nýju ári“.

Sveinbjörn bendir á að mikil vinna hafi verið lögð í að tryggja samfellu í rekstri Keflavíkurflugvallar við þessar óvissu aðstæður. Keflavíkurflugvöllur sé t.d. þegar orðinn sjálfbær þegar komi að rafmagni á flugvellinum og félagið komið á þann stað að geta haldið uppi órofnum rekstri flugvallarins ef til þess kemur að fæðing á heitu vatni rofnar á ný.

Ingibjörg Arnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála og mannauðs hjá Isavia, segir að einn mikilvægasta varðan í rekstri félagsins á árinu 2023 hafi verið vel heppnuð skuldabréfaútgáfa þess. 

„Isavia gaf út skuldabréf í lokuðu útboði að fjárhæð 175 milljónir evra til bandarískra fjárfesta sem jafngilti rúmum 25 milljörðum íslenskra króna.“ 

Ingibjörg segir enn fremur að fjárfestar hafi sýnt Isavia mikið traust og áhuginn á félaginu hafi verið töluverður í þessari fyrstu skuldabréfaútgáfu Isavia. „Þetta styrkti félagið verulega í þeirri mikilvægu uppbyggingu sem stendur yfir á Keflavíkurflugvelli og jákvæðar móttökur eru til merkis um vandaðan undirbúning af hendi Isavia. “

„Við horfum björtum augum til ársins 2024 og til framtíðar. Farþegaspá okkar gerir ráð fyrir að tæplega 8,5 milljónir farþega muni fara um Keflavíkurflugvöll á árinu sem er um 9% fjölgun milli ára. Í dag er ekkert sem bendir til annars en að sú spá muni ganga eftir. Í nýuppfærðri stefnumörkun móðurfélags Isavia er lögð áhersla á að styðja við framtíðarvöxt þeirra tengiflugfélaga sem velja Keflavíkurflugvöll sem sína tengistöð. Miðað við þær farþegaforsendur sem horft er til þarf áfram að byggja upp afkastagetu á flugvellinum og jafnvel hraðar en við stefndum áður að.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×