Viðskipti innlent

Forstjóraskipti hjá Play

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Birgir Jónsson, fráfarandi forstjóri PLAY og Einar Örn Ólafsson, forstjóri PLAY.
Birgir Jónsson, fráfarandi forstjóri PLAY og Einar Örn Ólafsson, forstjóri PLAY. Vísir

Stjórn Fly Play hf. og forstjóri félagsins, Birgir Jónsson, hafa í dag gert samkomulag um starfslok hans. Einar Örn Ólafsson, núverandi stjórnarformaður félagsins, tekur við sem forstjóri PLAY.

Frá þessu er greint  í tilkyninngu til Kauphallarinnar. Birgir mun starfa áfram hjá félaginu fram til 2. apríl næstkomandi og mun í framhaldinu verða félaginu til ráðgjafar næstu mánuði.

Einar Örn er einn stærsti einstaki hluthafi félagins og stjórnarformaður þess síðan í apríl 2021. Hann hefur dregið framboð sitt til stjórnar til baka en stjórnarkjör fer fram á aðalfundi félagsins þann 21. mars næstkomandi. 

Einar hefur tekið þátt í rekstri ýmissa félaga bæði sem fjárfestir og stjórnandi. Hann er stjórnarformaður Terra hf. og var áður forstjóri Fjarðarlax og Skeljungs ásamt því að búa yfir viðamikilli starfsreynslu á fjármálamarkaði. Einar Örn útskrifaðist með MBA gráðu frá NYU, Stern School of Business árið 2003 og er með B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Ísland.

Ævintýri líkast að hafa tekið þátt í uppbyggingu Play

Í tilkynningunni frá Play er haft eftir Einari Erni að hann sé fullur tilhlökkunnar fyrir komandi verkefnum.

Eftir kröftugt uppbyggingarstarf síðustu ára undir öflugri forystu Birgis er félagið á ákveðnum tímamótum. Sem stærsti einstaki hluthafi félagsins vil ég fylgja fjárfestingu minni eftir. Ég þekki vel til starfsemi og starfsmanna PLAY og sé mörg tækifæri og spennandi viðfangsefni framundan í rekstrinum. Ég er þakklátur stjórn PLAY fyrir traustið og vil líka þakka Birgi sérstaklega fyrir framlag hans til PLAY og ánægjulegt og gott samstarf.”

Birgir Jónsson, fráfarandi forstjóri segir það hafa verið ævintýri líkast að taka þátt í uppbyggingu Play.

Á tiltölulega skömmum tíma er orðið til öflugt íslenskt lággjaldaflugfélag með framúrskarandi vöru og þjónustu og bjarta framtíð. Virk samkeppni í flugi sem skilar sér í lægri fargjöldum, fjölbreyttum áfangastöðum og verðmætum erlendum gestum er sérstaklega mikilvæg fyrir eyju eins og okkar. Slík samkeppni varðar hagsmuni allra Íslendinga. Ég geng þess vegna ákaflega stoltur frá borði. PLAY hefur nú slitið barnsskónum og er orðið þroskað flugfélag. Ég hef átt gott og náið samband við Einar og félagið er í góðum höndum hjá honum. Ég hlakka til að sjá félagið blómstra undir hans forystu. Ég vil þakka viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir einkar ánægjulegt samstarf. Ég mun svo kveðja stórkostlegan hóp starfsmanna á næstu dögum.”





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×