Viðskipti innlent

Sig­ríður Lovísa hlaut flest at­kvæði í stjórnar­kjöri VR

Atli Ísleifsson skrifar
Sigríður Lovísa Jónsdóttir, Jónas Yngvi Ásgrímsson, Diljá Ámundadóttir Zoega og Bjarni Þór Sigurðsson tryggðu sér öll sæti í stjórn.
Sigríður Lovísa Jónsdóttir, Jónas Yngvi Ásgrímsson, Diljá Ámundadóttir Zoega og Bjarni Þór Sigurðsson tryggðu sér öll sæti í stjórn. VR

Sigríður Lovísa Jónsdóttir, gæðastjóri launa og jafnlaunavottunar hjá Brimborg, hlaut flest atkvæði í kosningum til stjórnar VR sem lauk í hádeginu. Hún hefur átt sæti í stjórn VR frá árinu 2022.

Allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna hófst 6. mars og til hádegis í dag. Kosið var um sjö sæti í stjórninni til tveggja ára og þá voru þrír varamenn kjörnir til eins árs. Atkvæði greiddu 3.496 en á kjörskrá voru alls 40.740. Kosningaþátttakan var því 8,58 prósent.

Niðurstöður kosninga eru sem hér segir:

Sjö stjórnarmenn til tveggja ára skv. fléttulista eins og kveðið er á um í 20. gr. laga VR.

  • Sigríður Lovísa Jónsdóttir
  • Jónas Yngvi Ásgrímsson
  • Diljá Ámundadóttir Zoega
  • Bjarni Þór Sigurðsson
  • Harpa Sævarsdóttir
  • Gabríel Benjamin
  • Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir

Þrír varamenn til eins árs

  • Arnþór Sigurðsson
  • Selma Björk Grétarsdóttir
  • Þorvarður Bergmann Kjartansson

Þessir aðilar eru því réttkjörnir skv. 20. gr. laga félagsins og hefst kjörtímabil þeirra á aðalfundi 2024 sem haldinn verður í lok mars.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×