Viðskipti innlent

Fjár­mála­kerfið standi traustum fótum

Árni Sæberg skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er formaður fjármálastöðugleikanefndar.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er formaður fjármálastöðugleikanefndar. Vísir/Vilhelm

Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum. Eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi þeirra að fjármögnun gott. Verðbólga hefur minnkað og aðlögun hefur átt sér stað í heildareftirspurn. Raunvextir hafa hækkað og dregið hefur úr lánsfjáreftirspurn heimila og fyrirtækja.

Þetta segir í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands, sem gefin var út í morgun. Hún verður kynnt á blaðamannafundi klukkan 09:30, þar sem nefndin situr fyrir svörum.

Í yfirlýsingunni segir að skuldahlutföll hafi almennt lækkað og séu nú lægri en þau hafa verið um árabil. Eiginfjárstaða heimila hafi batnað samhliða hækkun húsnæðisverðs og lækkun skulda að raunvirði. Á sama tíma hafi greiðslubyrði lánþega þyngst en vanskil séu þó enn lítil. 

Hækkun raunvaxta hafi þrengt að rekstrarumhverfi fyrirtækja og útlit sé fyrir að áhrifa þeirra gæti áfram á næstu misserum. Á móti vegi að eiginfjárstaða fyrirtækja í flestum atvinnugreinum er sterk, sem veiti viðnámsþrótt.

Eldhræringar hafa áhrif á íbúðamarkað

Horfur séu á að fólksfjölgun og afleiðingar eldsumbrotanna á Reykjanesi ýti undir umsvif á íbúðamarkaði þrátt fyrir núverandi vaxtastig og takmarkanir lánþegaskilyrða. Verð á húsnæði sé enn hátt í langtímasamhengi og mikilvægt sé að lántakendur stilli áhættutöku við íbúðakaup í hóf.

Þyngri greiðslubyrði lána samhliða hægari efnahagsumsvifum auki líkur á greiðsluerfiðleikum með neikvæðum áhrifum á fjármálastöðugleika. Til að viðhalda viðnámsþrótti bankanna hafi fjármálastöðugleikanefnd ákveðið að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5 prósent.

Ítreka stuðning við greiðslumiðlunarkerfið umdeilda

Fjármálastöðugleikanefnd ítreki stuðning sinn við framgang frumvarps um aukið rekstraröryggi í greiðslumiðlun sem er til meðferðar á Alþingi. Mikilvægt sé að huga heildstætt að viðnámsþrótti greiðslumiðlunar, með óháðri innlendri greiðslumiðlun, því að auka samkeppni, styrkja net- og rekstraröryggi og treysta rekstrarsamfellu.

Nefndin muni áfram beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×