Viðskipti innlent

Norskri loðnu landað á Eski­firði en ís­lenski flotinn enn kvótalaus

Kristján Már Unnarsson skrifar
Loðna á Eskifirði í dag. Þessi er komin í hús hjá Eskju.
Loðna á Eskifirði í dag. Þessi er komin í hús hjá Eskju. Eskja

Fyrstu loðnu ársins hefur verið landað á Eskifirði. Hún var þó ekki úr íslensku skipi heldur norsku sem veiddi hana í Barentshafi.

„Stundin sem beðið er með eftirvæntingu á hverju ári, fyrsta loðna ársins komin í hús. Norska skipið Hargrun kom til okkar í gærkvöldi með um 1.100 tonn af fínustu loðnu úr Barentshafinu. Aflinn fékkst í fjórum köstum norður af Noregi,“ segir á heimasíðu Eskju.

Hlynur Ársælsson, rekstrarstjóri uppsjávarfrystihússins, sagði í samtali við fréttastofu að allur afli norskra skipa færi á uppboðsmarkað og Eskja hefði einfaldlega boðið í farminn og fengið.

Loðnan á færibandinu á Eskifirði í dag.Eskja

Löng sigling var með aflann úr Barentshafi, um 950 sjómílur.

,,Aflinn er í fínu standi þrátt fyrir langa siglingu til Eskifjarðar. Vinnslan fer ágætlega af stað hjá okkur en smá hnökrar fylgja stundum þegar húsið hefur ekki verið keyrt í marga mánuði. En heilt yfir er þetta flott,“ segir Hlynur.

Hann segir hrognahlutfall loðnunnar milli 15 og 16 prósent og verði hún öll fryst til manneldis fyrir markaði í Asíu og Austur-Evrópu.

Starfsmenn í uppsjávarfrystihúsi Eskju fylgjast með vinnsluferlinu.Eskja

Að sögn Hlyns er von á öðru norsku loðnuskipi, Steinevik, til Eskifjarðar um hádegi á morgun með um 900 tonn. Eskja fái þannig um tvöþúsund tonn úr þessum tveimur skipum.

Á sama tíma bíður floti íslensku loðnuskipanna enn kvótalaus meðan sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar finna ekki nægilegt magn til að ráðleggja veiðar. Ljóst er að tíminn er að renna út núna þegar styttist í að loðnan hrygni og drepist. Loðnan hrygnir yfirleitt í febrúar og mars en hrygning gæti teygst fram í apríl.

Ekkert liggur enn fyrir hvort efnt verði til frekari loðnumælinga þennan veturinn, að sögn Guðmundar Óskarssonar fiskifræðings, sviðsstjóra uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar.

Guðmundur Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs hjá Hafrannsóknastofnun.Steingrímur Dúi Másson

„Við erum annars í viðbragðstöðu og tökum við fréttum og könnum þær og metum, og þær koma með reglulegu millibili,“ segir Guðmundur.

„Það hafa verið að koma togarafréttir frá Vestfjarðamiðum sem við höfum verið að kanna betur með hjálp áhafnarinnar á Örfirisey. En það lítur út fyrir að vera að mestu leyti ungloðna þar og því ekki vesturganga hrygningarloðnu.

Þá voru fréttir af loðnutorfum á Papagrunni og Lónsbuktinni í morgun og í dag sem við erum að afla okkur betri upplýsinga um. En ekkert ennþá sem hefur gefið tilefni til að ræsa út Heimaey sem er klár í Eyjum ef þörf er á. Staðan er því óbreytt,“ segir fiskifræðingurinn.


Tengdar fréttir

Í viðbragðsstöðu vegna frétta af loðnugöngum

Hafrannsóknastofnun hafa borist fréttir síðustu daga af loðnugöngum undan Suður- og Austurlandi en einnig út af Vestfjörðum og Húnaflóa. Fiskiskipið Heimaey VE er haft í viðbragðsstöðu í Vestmannaeyjum ef upplýsingar þykja benda til að stórar torfur séu á ferðinni.

Loðnan við Vestfirði ekki nægilega mikil

Loðnan sem fannst undan Patreksfirði í gær reyndist ekki vera í nægilegu magni til að unnt sé að heimila veiðar. Von um loðnuvertíð er því orðin veik og blasir loðnubrestur við þennan veturinn. Fulltrúar Hafrannsóknastofnunar funda með fulltrúum útgerðarinnar í dag um stöðuna.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×