Fótbolti

Af hverju svíkja fótboltamenn á Spáni undan skatti?

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ancelotti er sá nýjasti til að vera kærður fyrir að skjóta undan skatti. Bæði Cristiano Ronaldo og Lionel Messi hafa verið sakfelldir fyrir slík brot á Spáni.
Ancelotti er sá nýjasti til að vera kærður fyrir að skjóta undan skatti. Bæði Cristiano Ronaldo og Lionel Messi hafa verið sakfelldir fyrir slík brot á Spáni. Samsett/Getty

Ítalinn Carlo Ancelotti var í gær ákærður fyrir skattsvik af skattayfirvöldum á Spáni og lengist enn listi fótboltamanna og þjálfara sem sæta kæru fyrir slíkt þar í landi.

Ancelotti er þjálfari Real Madrid á Spáni en hann er sakaður um brot sem áttu sér stað milli 2014 og 2015, þegar hann var þjálfari liðsins. Spænskir saksóknarar krefjast tæplega fimm ára fangelsisvistar Ítalans þar sem hann á að hafa svikið um milljón evra, eða 150 milljónir króna á núvirði, vegna greiðslna tengda ímyndarrétti.

„Þetta eru í raun alltaf sömu greiðslurnar sem eru til umræðu, svokallaðar ímyndargreiðslur. Þær eru svolítið öðruvísi en þessar hefðbundnu greiðslur til leikmanna - þær eru gerðar í gegnum félög eða fyrirtæki sem eru í eigu leikmanna - þessi félög eru oft skráð annarsstaðar í heiminum en það á að gefa þetta upp á Spáni,“ segir Jóhann Már Helgason, fótboltasérfræðingur.

Jóhann Már Helgason.Vísir/Sigurjón

„Í tilfelli Carlo Ancelotti var upprunalega sagt að þau væru í Bretlandi og það komu í raun engar greiðslur til þessa félags frá Real Madrid, heldur fór það til Bresku jómfrúareyjanna. Spænsk skattayfirvöld komust að þessu nýverið og þá fékk Ancelotti þessa kæru í höfuðið,“ segir Jóhann um málið.

Einskorðast við Spán

Nokkur dæmi um fótboltamenn sem hafa verið sakfelldir fyrir skattsvik eða sættust á sekt.Vísir/Samsett/Sara

Ancelotti bætist í hóp fjölmargra fótboltamanna og þjálfara á Spáni sem sakaðir eru um að svíkja undan en Javier Mascherano var sakfelldur fyrir slíkt árið 2016 og Lionel Messi ári síðar. José Mourinho hlaut skilorðsbundinn dóm árið 2019 og landi hans Cristiano Ronaldo játaði sök sama ár. Diego Costa sem lék með Atlético Madrid játaði þá sök árið 2020.

En af hverju er þetta svo landlægt við Spán?

„Ég myndi halda að yfirvöldin þar séu með mestu eftirfylgnina á þessu, ef til vill vegna þess að stærstu málin hafa komið þar upp. En ég held að útfrá þessum málum sem komu í kjölfarið af Mourinho, Messi og Ronaldo hafi verið auknara eftirlit og meira eftirlit en annarsstaðar.“

Fótboltamenn flokkaðir sem listamenn

Fótboltamaður eða listamaður?Getty

Þessi mál eiga sér lengri sögu sem má rekja aftur til ársins 2005. Í rúman áratug voru í gildi lög sem gjarnan eru kennd við David Beckham, sem samdi við Real Madrid árið 2003. Þau lög léttu skattbyrði fótboltamanna umtalsvert. Eftir að þau voru felld úr gildi fór að bera meira á greiðslum tengdum ímyndarrétti.

„Þessi svokölluðu Beckham-lög, sem voru frá 2005 til 2015, þá voru fótboltamenn erlendis frá settir í lægra skattþrep og flokkaðir sem listamenn á Spáni. Þá voru þeir aðeins að greiða 24 prósent skatt í staðinn fyrir 45 prósent,“

„Þetta var svo að lokum afnumið vegna þess að það var talið að félögin væru að misnota kerfið og var ákveðin óánægja með þetta. En eftir það fóru þessar ímyndargreiðslur að aukast verulega á móti. Það má segja að þetta sé aðferð umboðsmanna og félaganna til að tryggja leikmönnum sem mestan pening í vasann. Það getur þá endað með því að skatturinn fer að seilast eftir sínu,“ segir Jóhann Már.

Fréttina má sjá í spilaranum að neðan.


Tengdar fréttir

Fara fram á fimm ára fangelsi yfir Ancelotti

Saksóknarar á Spáni hafa sakað Ítalann Carlo Ancelotti, þjálfara Real Madrid, um skattsvik og krefjast tæplega fimm ára fangelsisdóms vegna meintra brota hans.

Mascherano fékk eins árs fangelsisdóm

Spænska blaðið El Mundo sagði frá því á netsíðu sinni í dag að argentínski knattspyrnumaðurinn Javier Mascherano hafi verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir skattsvik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×