Viðskipti innlent

Ráðin á­byrgðar­maður Arion vegna að­gerða gegn peninga­þvætti

Atli Ísleifsson skrifar
Cecilia Agneta Ståhle.
Cecilia Agneta Ståhle. Arion banki

Cecilia Agneta Ståhle hefur tekið við hlutverki ábyrgðarmanns vegna aðgerða Arion banka gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Í tilkynningu frá bankanum segir að Cecilia muni stýra sjálfstæðri einingu innan regluvörslu sem hafi það hlutverk að leiða vinnu við gerð og uppfærslu áhættumats til að bera kennsl á og meta hættu á peningaþvætti. 

„Teymið mun einnig fylgja eftir innleiðingu á stefnum, stýringum, og verkferlum til að draga úr og stýra peningaþvættisáhættu. Þá mun það sinna reglubundnu eftirliti með framkvæmd bankans í þessum efnum.

Cecilia, sem jafnframt er staðgengill regluvarðar bankans, er viðskiptafræðingur frá BI Norwegian Business School í Osló. Hún hefur starfað hjá Arion banka frá því í maí 2022 og tók við sem staðgengill regluvarðar í maí 2023. Hún hefur yfir 20 ára reynslu af störfum á fjármálamarkaði, bæði á sviði rekstrar og innra eftirlits, en einna helst af aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Áður en hún hóf störf hjá Arion banka starfaði hún sem regluvörður sænska bankans Ikano Bank AB, sem er einnig með starfsemi í Danmörku, Noregi, Finnlandi, Bretlandi, Þýskalandi og Póllandi. Cecilia situr í stjórn Aros Kapital AB, sem er sænsk fjármálastofnun, og á þar sæti í endurskoðunar-, áhættu og lagahlítingarnefnd stjórnar.

Arion banki hefur unnið markvisst að því að efla fyrirkomulag varna gegn peningaþvætti í allri starfsemi sinni, ekki síst eftir að lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka tóku gildi í ársbyrjun 2019. Með því að koma á fót þessari sjálfstæðu eftirlitseiningu innan regluvörslu bankans er verið að gera þessum mikilvæga málaflokki enn hærra undir höfði. Að auki kom Arion banki í apríl 2022 á fót sérstakri einingu, viðskiptaeftirliti, skipuð reynslumiklu starfsfólki sem vinnur þétt með framlínu bankans við að fylgja eftir aðvörunum úr færslueftirlitskerfum og ábendingum frá starfsfólki um óhefðbundna viðskiptahegðun og atriði sem benda til aukinnar peningaþvættisáhættu,“ segir í tilkynningunni.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×