Viðskipti innlent

Skagi inn í Kaup­höllina í stað VÍS

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga.
Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga.

Skagi er nýtt móðurfélags VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og SIV eignastýringar. Framtíðarskipulag samstæðunnar hefur verið kynnt og samþykkt af hluthöfum með tilfærslu tryggingareksturs í dótturfélag. Skagi verður skráða félagið í félagið í Kauphöll Íslands, sem áður var undir merkjum VÍS. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að með sameiningu VÍS, Fossa og SIV verði til nýtt afl á fjármálamarkaði sem stefni á arðbæran vöxt á sviði trygginga, fjárfestingarbankastarfsemi og eignastýringar. Félögin verði dótturfélög hins nýja félags.

Segir í tilkynningunni að á síðasta ári hafi farið mikill kraftur í sameiningu félaganna og er samþættingu þeirra nú lokið. Nýtt nafn og vörumerki var kynnt til sögunnar í gær samhliða boðun til aðalfundar þann 21. mars næstkomandi. Fyrsta uppgjör nýrrar samstæðu var birt í kauphöllinni eftir lokun markaða í gær.

300 tillögur í nafnasamkeppni

Þá kemur fram í tilkynningunni að eftir ítarlega leit, þar sem starfsfólk samstæðunnar skilaði inn hátt í þrjú hundruð tillögum, hafi fundist nafn sem stóðst allar kröfur. Nafnið Skagi sé innblásið af íslenskri náttúru, styrk hennar og samspili við líf fólksins í landinu. Það vísi í stórt nes eða langan höfða og þykir kröftugt en er á sama tíma stutt og hljómfagurt.

Er þess getið að hinir ýmsu skagar landsins teygi sig tignarlega frá meginlandinu með fallegu útsýni yfir land og sjó. Tröllaskagi, Skipaskagi, Tindaskagi, Garðskagi og Skagatá. Skaga sé að finna í öllum landshlutum.

Nafnið sé viðeigandi fyrir fyrirtæki með djúpar rætur í íslensku samfélagi líkt og tryggingafélagið en vísi í einnig í markmið félagsins að tengja íslenskt atvinnulíf við erlenda markaði.

Samstæðan búi að langri og farsælli sögu í tryggingarekstri, framsækni í fjármálaþjónustu og langtímaárangri í fjárfestingum. Áhersla sé lögð á framúrskarandi þjónustu og traust langtímasamband við viðskiptavini.

„Frá því að sameining félaganna var frágengin í byrjun október á síðasta ári hefur mikil vinna farið fram í tengslum við samþættingu þeirra og innleiðingu á framtíðarfyrirkomulagi samstæðunnar. Nú þegar samþættingu er lokið kynnum við nýtt nafn og vörumerki móðurfélagsins til sögunnar. Nýtt afl á fjármálamarkaði er tilbúið til sóknar,“ segir Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×