Viðskipti innlent

Helga hættir sem for­maður banka­ráðs

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Helga Björk Eiríksdóttir.
Helga Björk Eiríksdóttir. Landsbankinn.

Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs Landsbankans, sem hefur setið í bankaráði frá árinu 2013 og verið formaður þess frá árinu 2016, gefur ekki kost á sér til áframhaldandi setu í bankaráði á aðalfundi bankans í mars. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landsbankans.

Þá mun Berglind Svavarsdóttir, varaformaður bankaráðs, sem setið hefur í bankaráði frá árinu 2016, heldur ekki gefa kost á sér og lætur af störfum í bankaráði á sama tíma. Aðalfundurinn fer fram þann 20. mars.

Berglind Svavarsdóttir kveður bankann sömuleiðis.

Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs, segir á vef bankans: 

„Ég hef setið í stjórn Landsbankans í 11 ár. Þar hef ég fengið tækifæri til að starfa með frábæru fólki og taka þátt í mörgum krefjandi, mikilvægum og skemmtilegum verkefnum, s.s. umbreytingum á fjárhagsskipan bankans, umbótum á stjórnarháttum, framþróun í upplýsingatækni og stafrænni þjónustu og síðast en ekki síst móta stefnuna fyrir Landsbanka nýrra tíma. Landsbankinn hefur dafnað afar vel á síðustu árum. Hann er stærstur viðskiptabankanna, reksturinn er traustur og fjárhagslegur styrkur bankans mikill. Landsbankinn nýtur samkvæmt mælingum mests traust bankanna, er með hæstu markaðshlutdeildina og hefur mælst efstur í Íslensku ánægjuvoginni hjá viðskiptavinum í bankaþjónustu síðustu fimm árin. Þrátt fyrir krefjandi ytri aðstæður var árið 2023 afar farsælt og þegar á allt er litið er óhætt að segja að síðasta ár hafi verið það besta í sögu bankans. Hagnaðurinn var 33,2 milljarðar króna og arðsemin 11,6% sem er yfir markmiði bankans. Flutningar í nýtt húsnæði gengu afar vel, fjölmargir viðskiptavinir bættust í hópinn og bankinn bauð upp á margar nýjar og vel heppnaðar lausnir til að mæta síbreytilegum þörfum viðskiptavina.

Ég er afar þakklát fyrir góðan tíma hjá Landsbankanum og þakka öllum bankaráðsmönnum, bankastjóra, öðrum stjórnendum og öllu því frábæra starfsfólki sem ég hef kynnst og starfað með undanfarin ár, kærlega fyrir samstarfið. Starfsfólk bankans er metnaðarfullt og hefur ávallt fagmennsku að leiðarljósi í störfum sínum. Þá vil ég þakka hluthöfum fyrir traustið og afar góð samskipti á liðnum árum. Ég kveð Landsbankann með hlýhug og stolti og veit að hans bíður farsæl framtíð.“


Tengdar fréttir

Auglýsa eftir fólki í stjórnir íslenskra banka

Bankasýsla ríkisins óskar eftir umsóknum um stjórnarsetu í Íslandsbanka, Landsbanka og Sparisjóð Austurlands. Ekki liggur fyrir hvort sitjandi stjórnarmenn muni gefa kost á sér til áframhaldandi setu.

Kvarta undan skipan Sigríðar í hæfisnefnd 

Tveir umsækjendur um starf seðlabankastjóra hafa kvartað vegna skipunar Sigríðar Benediktsdóttur í hæfisnefnd. Telja hana vanhæfa vegna setu í bankaráði Landsbankans. Bar ákvörðunina ekki undir formann bankaráðs. 

Launahækkun forsenda þess að hæft fólk fengist

Bankaráð Landsbankans hafði áhyggjur af því að ekki yrði hægt að ráða hæfasta bankastjórann á þeim kjörum sem fyrrverandi bankastjóri var á. Formaður ráðsins telur að hófs hafi verið gætt með tilliti til starfskjarastefnu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×