Viðskipti erlent

Bjóða ní­ræðum ó­keypis flug

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Félagið fagnar 90 árum á árinu.
Félagið fagnar 90 árum á árinu. Artur Widak/NurPhoto via Getty

Í ár eru 90 ár frá stofnun norska flugfélagsins Widerøe. Af því tilefni hafa forsvarsmenn félagsins ákveðið að bjóða fólki fæddu 1934 frítt flug.  

Þetta kemur fram á vefsíðu flugfélagsins, þar sem saga þess er rakin. 

„Frá því að vera félag sem lagði áherslu á stuttar flugferðir hefur Widerøe vaxið og orðið stór leikmaður í alþjóðaflugi,“ segir meðal annars í tilkynningu félagsins. Þrátt fyrir það sé Noregur enn hluti af kjarna félagsins, sem sé með yfir 40 áfangastaði við Noregsstrendur. 

Félagið var stofnað 19. febrúar 1934 og fór jómfrúarflug sitt 18. júní sama ár. Þá var flogið frá Osló til Haugesund, með viðkomu í Kristiansand og Stafangri. 

Um hina ókeypis flugferð fyrir jafnaldra flugfélagsins gilda ákveðnir skilmálar. Um er að ræða flug báðar leiðir fyrir fólk sem fætt er árið 1934, og níræðir geta aðeins nýtt sér tilboðið á almanaksárinu 2024. Þá er ekki hægt að breyta ferð sem bókuð hefur verið, en bóka þarf ferðir minnst 30 daga fram í tímann. Eins geta jafnaldrar félagsins aðeins nýtt sér tilboðið einu sinni, og fljúga því ekki frítt allt árið. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×