Golf

Tiger þurfti vökva í æð og hætti keppni á miðjum hring

Smári Jökull Jónsson skrifar
Fyrsta mót Tiger Woods gekk ekki eins og hann hefði óskað.
Fyrsta mót Tiger Woods gekk ekki eins og hann hefði óskað. Vísir/Getty

Endurkomu Tiger Woods á PGA-mótaröðina í golfi var beðið með töluverðri endurvæntingu en á fimmtudagskvöld var hann mættur til leiks á mótaröðinni í fyrsta sinn síðan í apríl á síðasta ári.

Síðustu misseri hjá Tiger hafa einkennst af meiðslum en hann sagði á dögunum að hann væri loks verkjalaus og vonuðust aðdáendur hans til að nú væru bjartari tímar framundan. Tiger lék 72 holur á litlu móti í desember en mótið í Rivera sveitaklúbbnum í Kaliforníu nú um helgina átti að vera hin raunverulega endurkoma.

Fyrsti hringurinn í Kaliforníu var skrautlegur. Sex fuglar og sjö skollar sáu til þess að hann var átta höggum á eftir Patrick Cantlay sem var í efsta sætinu. Woods átti skrautleg högg og fann þar að auki fyrir krampa í baki á lokaholunum.

Hann hóf síðan leik á öðrum hring í gærkvöldi. Hann féll niður niðurskurðarlínuna eftir tvo skolla í röð snemma og á sjöundu braut skaut Woods teighöggi en hætti svo keppni. Hann var fluttur af svæðinu í golfbíl og forráðamenn PGA-mótaraðarinnar staðfestu að hann væri veikur.

„Bakið hans er í fínu lagi“

Rob McNamara, viðskiptafélagi og ráðgjafi Woods til fjölda ára, greindi síðan frá því í viðtali að Woods hefði þurft vökva í æð eftir að hafa fundið fyrir svima.

„Hann byrjaði að finna fyrir flensueinkennum í gærkvöldi. Hann vaknaði í morgun og þá voru einkennin verri en kvöldið áður. Hann var með hita en leið betur í upphituninni en þegar hann kom út á völl og var að spila þá byrjaði hann að finna fyrir svima,“ sagði McNamara við fréttamenn.

„Læknarnir segja að hann sé með einhverja flensu og að hann hafi þurft vökva. Hann fékk vökva í æð og líður mun betur. Bakið hans er í fínu lagi, þetta voru bara veikindi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×