Golf

Haraldur svaraði fyrir sig og er í toppbaráttu í Höfða­borg

Sindri Sverrisson skrifar
Haraldur Franklín Magnús slær boltann á mótinu í Höfðaborg.
Haraldur Franklín Magnús slær boltann á mótinu í Höfðaborg. Getty/Johan Rynners

Haraldur Franklín Magnús er á meðal efstu manna á golfmóti í Höfðaborg í Suður-Afríku eftir afar góða spilamennsku á öðrum hring mótsins í dag, á stað sem honum hefur ekki gengið vel á.

Mótið heitir Bain‘s Whisky Cape Town Open og er hluti af evrópsku Áskorendamótaröðinni (e. Challenge Tour). Mótinu lýkur á sunnudaginn.

Haraldur lék í dag á aðeins 66 höggum, eða sex höggum undir pari vallarins, eftir að hafa leikið á þremur höggum undir pari í gær. Hann er því samtals á -9 höggum og einn af efstu kylfingunum þegar þetta er skrifað.

„Þetta er uppreisn æru. Ég hef spilað hérna áður en aldrei gert vel, svo loksins er það að takast,“ sagði Haraldur í viðtali sem birtist á samfélagsmiðlum Áskorendamótaraðarinnar.

„Maður þarf þolinmæði. Það virðist hægt að ná góðu skori en það þarf að slá mörg erfið högg og ég er stoltari af að hafa ekki fengið neinn skolla, frekar en af fuglunum sem ég náði.

Ég náði oft að bjarga pari sem hélt mér á góðu skriði. Ég held að ég hafi aldrei hitt á flaggið, heldur alltaf á millisvæðið á flötinni, en setti niður góð pútt,“ sagði Haraldur.

Hann var spurður hvernig hann kynni við vallaraðstæður í Höfðaborg:

„Þetta er mjög ólíkt því sem ég er vanur heima. Þar erum við ekki með nein tré. En þetta er líkara því þegar ég spilaði í Louisiana, þar sem ég fór í háskóla, svo ég kann vel við þetta,“ sagði Haraldur og kvaðst njóta þess að vera í toppbaráttunni:

„Það er bara gaman. Ég er spenntur fyrir helginni og reyni að ná eins mörgum pörum og ég get, ef að vindurinn verður eins og spáin segir til um.“

Stöðuna á mótinu má finna hér. Þetta er annað mót Haraldar á Áskorendamótaröðinni í ár en hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn á SDC Open, í Limpopo í Suður-Afríku í síðustu viku. Þriðja mót hans í landinu verður svo í nágrenni borgarinnar George dagana 15.-18. febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×