Viðskipti innlent

Spá því að ársverð­bólga verði 5,9 prósent í apríl

Lovísa Arnardóttir skrifar
Útsölur og lækkun flugfargjalda á að vega á móti gjaldskrárhækkunum sem tóku gildi um áramót. Útsölur eru í flestum verslunum þessa dagana.
Útsölur og lækkun flugfargjalda á að vega á móti gjaldskrárhækkunum sem tóku gildi um áramót. Útsölur eru í flestum verslunum þessa dagana. Vísir/Vilhelm

Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að verðbólga haldi áfram að hjaðna og verði komin í sex prósent í apríl. En til að það gerist þarf íbúðamarkaður „að vera til friðs“ og krónan að haldast stöðug. Þetta kemur fram í nýjustu spá deildarinnar sem birt var í dag.

„Í desember síðastliðnum hjaðnaði verðbólga þvert á spár og mælist ársverðbólga nú 7,7%. Við erum nokkuð bjartsýn á verðbólguhorfur og teljum að verðbólga haldi áfram að hjaðna á næstu mánuðum og það nokkuð hratt. Helsta ástæða þess er að stórir hækkunarmánuðir á fyrri hluta síðasta árs eru að detta út úr 12 mánaða mælingunni,“ segir í spá Greiningar Íslandsbanka en höfundur hennar er Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur.

Samkvæmt bráðabirgðaspá deildarinnar verður ársverðbólga 5,9 prósent í apríl gangi spáin eftir. Það sé talsverð óvissa og stærsti óvissuþátturinn sé verðþróun á íbúðamarkaði og gengi krónunnar.

Bráðabirgðaspá þar til í apríl:

  • Febrúar 0,8% - ársverðbólga mælist 6,6%: Útsölulok helstu áhrif
  • Mars 0,5% - ársverðbólga mælist 6,6%: Útsölulok teygjast fram í mars
  • Apríl 0,6% – ársverðbólga mælist 5,9%: Árstíðabundin hækkun flugfargjalda

Í spá Greiningar kemur einnig fram að deildin spáir 0,4 prósent hækkun vísitölu neysluverðs í janúar.

Ýmsar gjaldskrárbreytingar tóku gildi um áramót að vanda auk þess sem ýmis gjöld hækkuðu á milli mánaða. Hækkanir á bílum vega þar þyngst vegna niðurfellingar virðisaukaskatts á nýjum rafmagns- og vetnisbílum. Þess í stað er veittur styrkur úr Orkusjóði vegna kaupa á slíkum bílum sem kosta undir 10 milljónum króna sem á að draga aðeins úr hækkuninni. Greining hjá Íslandsbanka spáir því að þessi breyting muni hækka verð á bílum um 6,5 prósent á milli mánaða.

Áfengi og tóbak hækkar samkvæmt spánni um 3,5 prósent og eldsneyti um 1,6 prósent. Hvort tveggja er að mestu vegna hækkana á krónutölugjöldum um áramót. Einnig hækka matar- og drykkjarvörur í verði um 0,6 prósent samkvæmt spá Íslandsbanka. Þar vegi þyngst hækkanir á mjólkurvörum um 0,06 prósent en Verðlagsnefnd búvara tilkynnti hækkanir sem tóku gildi nú í janúar.

Aðrir helstu liðir sem hækka á milli mánaða eru tómstundir og menning ásamt annarri vöru og þjónustu

Verð á fötum og skóm lækkar um 8,5 prósent

Í spá Greiningar segir að á móti þessu vegi útsölur og lækkun á flugfargjöldum. Samkvæmt mælingu Íslandsbanka lækkar verð á fötum og skóm um 8,5 prósent og húsgögnum og heimilisbúnaði um 5 prósent. Flugfargjöld lækka einnig í mánuðinum en þó talsvert minna en venjan er þar sem flugverð hækkaði minna en vant er í desember. Samkvæmt spá þeirra munu flugfargjöld lækka um 5 prósent

Íbúðamarkaður heilbrigðari

Fjallað erum stöðu íbúðamarkaðarins í spánni en þar segir að hann hafi róast heilmikið og sé orðinn talsvert heilbrigðari en hann var fyrir rúmu ári síðan.

Árshækkun íbúðaverðs mældist 4,2 prósent í desember síðastliðnum en til samanburðar mældist árshækkun mest 25 prósent sumarið 2022.

„Íbúðaverð hefur þó verið að sveiflast nokkuð til og erfitt hefur reynst að spá fyrir um einstaka mánaðarbreytingar. Þótt ekki sé hægt að útiloka áframhaldandi sveiflur teljum við að þróunin til meðallangs tíma verði með þeim hætti að íbúðamarkaður verði rólegur og árshækkun haldi áfram að mælast lág,“ segir í spánni.

Þá er því spáð að reiknaða húsaleigan hækki um 0,6 prósent í janúar á milli mánaða. Vaxtaþátturinn skýri hækkunina að mestu, eða 0,5 prósent á meðan íbúðaverð skýrir 0,1 prósent.

Hægt er að kynna sér spána hér.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×