Viðskipti innlent

Gleði­legt að verð­bólga virðist hjaðna fyrr en spáð var

Heimir Már Pétursson skrifar
Verðbólga í desember er heldur minni en greiningadeildir bankanna og Seðlabankinn höfðu spáð.
Verðbólga í desember er heldur minni en greiningadeildir bankanna og Seðlabankinn höfðu spáð. Vísir/Vilhelm

Verðbólga er minni í desember en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir og mælist nú 7,7 prósent samkvæmt vísitölu Hagstofunnar. Hagfræðingur Landsbankans segir gleðiefni að verðbólgan virðist vera að hjaðna hraðar en spáð hafði verið.

Hagsjá Landsbankans hafði spáð að verðbólga yrði 8,1 prósent í desember, Greining Íslandsbanka að hún yrði 8,3 prósent og í síðasta riti Peningamála Seðlabankans var gert ráð fyrir að verðbólga í jólamánuðinum yrði 7,9 prósent. En eins og áður segir er verðbólgan nú heldur minni en það eða 7,7 prósent.

Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur Íslandsbanka segir þetta vera góðar fréttir.

Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir hraðari hjöðnun verðbólgu vera gott veganesti inn í yfirstandandi kjaraviðræður.Íslandsbanki

„Okkur er bara frekar létt þótt við höfum spáð meiri verðbólgu í desember en síðan raungerðist.“

Hvað er það sem helst er að hjápa til við þetta heldur þú?

„Það er húsnæðismarkaðurinn. Verðið er að hækka hægar en það hefur verið að gera síðustu mánuði. Svo er flugverðið að hækka talsvert minna en venjulega í desember og það hefur áhrif,“ segir Bergþóra.

Verðbólgan virtist því vera að hjaðna um mánuði fyrr en spár gerðu ráð fyrir.

„Og það er ansi jákvætt. Sérstaklega þar sem kjarasamningar eru að losna í byrjun næsta árs. Þannig að þetta eru góðar fréttir í þá baráttu,“ segir hagfræðingur Íslandsbanka.

Það væri einnig jákvætt að tóninn í verkalýðshreyfingunni væri að stefna að langtíma kjarasamningum sem stuðli að minni verðbólgu. Hún gæti jafnvel hjaðnað meira en niður í 5 prósent eins og Seðlabankinn geri ráð fyrir á næsta ári.

Bergþóra Baldursdóttir segir það hafa áhrif á verðbólguna að dregið hafi úr hækkun húsnæðisverðs.Vísir/Vilhelm

„Það gæti alveg farið svo að hún verði minni. Þá þurfa bara ýmsir kraftar að vinna með okkur. Og auðvitað vonum við að hún hjaðni nokkuð hratt. Þessir kraftar sem þurfa að vinna með okkur eru að húsnæðismarkaðurinn þarf að vera rólegur. Þessar sveiflur á húsnæðisverðinu hafa svolítil áhrif á árstaktinn í verðbólgunni, skammtíma áhrif,“ segir Bergþóra.

Verkalýðshreyfingin þrýstir á nýja stefnu stjórnvalda í húsnæðismálum í tengslum við næstu kjarasamninga. Bergþóra segir enn mikla spennu á markaðnum ekki hvað síst vegna mikillar fjölgunar landsmanna með innflutningi fólks, það þurfi því að vanda til aðgerða.

„Ég held að það væri best að gera það á framboðshliðinni. Að það sé nóg framboð af eignum handa öllum sem eru að koma hingað til lands og öllum þeim sem eru að kaupa sér sína fyrstu eign, til dæmis,“ segir Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur hjá Íslandsbanka.


Tengdar fréttir

Verðbólgan minnkar um 0,3 prósentustig

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í desember 2023, er 608,3 stig og hækkar um 0,41 prósent frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 497,9 stig og hækkar um 0,26 prósent frá nóvember 2023. Ársverðbólgan minnkar þó um 0,3 prósentustig milli mánaða.

Verð­bólga byrji að hjaðna hratt á nýju ári

Hagfræðideild Íslandsbanka spáir því að verðbólga muni aukast í desember úr átta prósentum í 8,3 prósent. Eftir áramót muni hún hins vegar byrja að hjaðna og verði komin niður í sjö prósent í mars. 

Seðlabankastjóri ánægður með tóninn í kjaraviðræðum

Seðlabankastjóri segir minnkandi einkaneyslu og fjárfestingar og versnandi fjármálaskilyrði sýna að aðgerðir bankans til að draga úr verðbólgu væru að virka. Mjög jákvæður tónn berist nú frá aðilum vinnumarkaðarins varðandi nýja kjarasamninga sem geti leitt til þess að hraðar dragi úr verðbólgu.

Forystufólk ASÍ og SA segir alla þurfa að leggjast á eitt

Forystufólk Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins er sammála um að gera eigi nýja langtíma kjarasamninga sem skapi stöðugleika og stuðli að hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta. Nú eru átta vikur þar til gildandi skammtíma kjarasamningar á almennum vinnumarkaði renna út.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×