Viðskipti innlent

Rúmur tugur búða sektaður vegna verð­merkinga

Jakob Bjarnar skrifar
Frá miðborginni. Þar fóru útsendarar Neytendastofu um og hafa nú sektað 11 fyrirtæki fyrir slæleg vinnubrögð við verðmerkingar.
Frá miðborginni. Þar fóru útsendarar Neytendastofu um og hafa nú sektað 11 fyrirtæki fyrir slæleg vinnubrögð við verðmerkingar. vísir/vilhelm

Neytendastofa hefur sektað 11 fyrirtæki í miðborginni vegna ófullnægjandi verðmerkinga.

Um er að ræða verslanirnar Aurum, Álafoss, Arctic Explorer, Collections, Fjall Raven, Gull og Silfur, Icemart á Laugavegi, Icemart á Skólavörðustíg, Islandia, Levi‘s, Lundinn, Nordic Market á Laugavegi 25, Nordic Market á Laugavegi 51, Nordic Store og verslun Guðsteins.

Í skjalinu sem fylgir ákvörðuninni segir meðal annars, í tilfelli verslunar Guðsteins:

„Með vísan til alls framangreinds, sem og að teknu tilliti til meðalhófsreglu og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga, og með hliðsjón af sektarákvörðunum í sambærilegum málum þykir Neytendastofu hæfilegt að leggja á Vaðmál og Glingur ehf. stjórnvaldssekt að fjárhæð 50.000 kr. (fimmtíu þúsund krónur). Sektina skal greiða í ríkissjóð eigi síðar en þremur mánuðum frá dagsetningu ákvörðunar þessarar.“

Í sambærilegu skjali sem snýr að Nordic Market segir að Neytendastofa sekti þá verslun um sem nemur hundrað þúsund krónum.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef neytendastofu en í haust skoðaði stofan ástand verðmerkinga verslana á Laugavegi sem og í aðliggjandi götum. Farið var í 109 verslanir og kannað hvort vörur væru verðmerktar auk þess sem kannað var sérstaklega hvort verðmerkingarnar væru sýnilegar í útstillingum. Í fyrri skoðun voru gerðar athugasemdir við verðmerkingar 43 verslana.

Í skoðun sem var fylgt eftir hjá þessum 43 verslunum höfðu 28 verslanir bætt sig þannig að ekki þótti tilefni til frekari aðgerða hjá þeim.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×