Viðskipti innlent

Segir nýja Bjarna gagn­rýna gamla Bjarna

Jón Þór Stefánsson skrifar
Að mati Sigmars er nýi Bjarni að gagnrýna gamla Bjarna.
Að mati Sigmars er nýi Bjarni að gagnrýna gamla Bjarna. Vísir/Vilhelm

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi fjölmiðlamaður, segist ósammála Bjarna Benediktssyni, utanríkisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra, um Kveiksþátt sem var sýndur í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi. Bjarni deildi þeirri skoðun sinni í dag að þátturinn innihéldi áróður og væri „eiginlega hneyksli“, en Sigmar segir hins vegar þáttinn stórfínan og hið raunverulega hneyksli vera gagnrýni Bjarna.

Umfjöllunarefni Kveiks í gær var íslenska krónan, sem hefur veikst mikið að undanförnu í samanburði við aðra stærri gjaldmiðla. Yfirskrift þáttarins var að útflutningsfyrirtæki flýi krónuna en heimilin sitji uppi með hana.

„Í heildina skorti í þennan þátt allt jafnvægi, alla fagmennsku og yfirvegun í efnahagslega samhenginu. Það er hálf sorglegt að boðið sé upp á svona efni á Ríkisútvarpinu.“ skrifaði Bjarni meðal annars á Facebook-síðu sína í gær að þættinum loknum.

Sigmar gerði gagnrýni Bjarna að umfjöllunarefni sínu í ræðustól á Alþingi í dag. Þar vildi hann meina að Bjarni hefði ekki minnst á eina einustu staðreyndavillu sem hafi borið á góma í þættinum, og að í honum hafi mismunandi sjónarmið komið fram.

„Bjarni, sem ber auðvitað mikla ábyrgð á vaxtabrjálæðinu sem núna er allt að drepa, segir að í þáttinn hafi vantað umræðu um gengisáhættu og er þar að vísa í myntkörfulánin fyrir hrun. En hvað sagði Bjarni Benediktsson um nákvæmlega þetta í lok árs 2008 þegar þjóðin sleikti sár sín, meðal annars vegna þess að gjaldmiðillinn hrundi?“ spurði Sigmar.

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, starfaði hjá RÚV í rúma tvo áratugi og segir þátt sem var í Ríkissjónvarpinu í gær vera stórgóðan.Vísir/Vilhelm

Vísaði í gamla grein

Hann vísaði í grein sem Bjarni skrifaði ásamt Illuga Gunnarssyni, fyrrverandi ráðherra, í Fréttablaðinu þann 13 ágúst 2008, sem bar heitið Endurreisn á nýjum grunni. Þar skrifuðu þeir:

„Sé horft til lengri tíma er hætt við að krónan verði okkur fjötur um fót. Sá sveigjanleiki sem krónan veitir okkur til að kljást við afleiðingar mistaka í hagstjórn eða til að bregðast við ytri áföllum á sér því miður þá skuggahlið að vera sveifluvaldandi og geta ýtt undir óstöðugleika í hagkerfinu. Óstöðugur gjaldmiðill dregur úr trausti á hagkerfinu.“

Að mati Sigmars er Bjarni dagsins í dag að gagnrýna Bjarna ársins 2008 og saka um áróður. „Þegar nákvæmlega sömu sjónarmið og hans árið 2008 eru viðruð í gær af virtum hagfræðingum þá heitir það hneyksli og áróður gegn krónunni. Nýi Bjarni er sem sagt að gagnrýna gamla Bjarna fyrir áróður og er hneykslaður.“

Þá vill Sigmar meina að Bjarni gleymi viljandi að nefna okurvexti og verðbólgu sem sé miklu hærri á Íslandi en annars staðar, sem og hagstjórnarmistök Sjálfstæðisflokksins

„Minnisleysið náði líka yfir langvarandi lágvaxtarskeiðið sem hann lofaði fyrir tveimur árum og stóð yfir í korter,“ segir Sigmar sem heldur því fram að það sé ekki Kveiksþátturinn sem sé hneyksli. „Það er ekki Kveiksþátturinn sem er hneyksli, það er ábyrgðarflótti Sjálfstæðisflokksins sem er hneyksli. Það að saka fjölmiðil um áróður þegar fjölmiðillinn er að vinna vinnuna sína er hneyksli og hæstvirtur fyrrverandi fjármálaráðherra ætti að hafa það í huga.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×