Innlent

For­seta­hjónin í opin­berri heim­sókn til Reykja­víkur á fimmtu­dag

Lovísa Arnardóttir skrifar
Eliza og Guðni munu verja fimmtudeginum í Reykjavík í opinberri heimsókn.
Eliza og Guðni munu verja fimmtudeginum í Reykjavík í opinberri heimsókn. Vísir/Vilhelm

Þétt dagskrá verður í boði borgarinnar þegar forsetahjónin heimsækja höfuðborgina á fimmtudaginn. Borgarstjórahjónin munu leið þau í gegnum borgina á hina ýmsu viðburði og fjölbreyttar heimsóknir. Borgarbúum gefst kostur á að hitta þau á Kjarvalsstöðum. 

Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid koma í opinbera heimsókn til Reykjavíkur á fimmtudaginn, 23. nóvember. Frá því er greint í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar kemur einnig fram að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og eiginkona hans, Arna Dögg Einarsdóttir, muni á móti forsetahjónunum í Ráðhúsi Reykjavíkur og fylgja þeim vítt og breitt um borgina.

Heimsókn forsetahjónanna verður sérstaklega fagnað með opnum viðburði á Kjarvalsstöðum klukkan 17 þar sem boðið verður upp á skemmtilega dagskrá. 

Fram kemur í tilkynningunni að forsetahjónin muni kynna sér starfsemi borgarinnar með sérstaka áherslu á framþróun Reykjavíkurborgar og nýja samfélagsgerð. Skólahljómsveit Vestur- og Miðbæjar mun taka á móti þeim ásamt borgarstjórahjónunum og hefja þau daginn á að heilsa upp á starfsfólk borgarinnar sem og starfsfólk Grindavíkurbæjar sem er með aðstöðu í Ráðhúsinu um þessar mundir.  

Þétt dagskrá verður fyrir þau allan daginn. Munu þau meðal annars heimsækja íslenskuver í Breiðholtsskóla, hitta börnin í fjölmenningarlega leikskólanum Ösp, funda með unglingum í Breiðholti, kynna sér félagsstarf ungra foreldra og eldri borgara og heimsækja Smiðjuna, sem er virknimiðstöð fyrir fatlað fólk í Grafarvogi. Þá verður samfélagshúsið í Úlfarsárdal sótt heim en það tengir saman Dalsskóla, Borgarbókasafnið, íþróttahús Fram og Dalslaug, nýjustu sundlaug Reykvíkinga. 

Opið hús á Kjarvalsstöðum

Þá munu borgarstjórahjónin einnig fylgja gestum sínum um kvikmyndaþorpið í Gufunesi og í Elliðaárdal þar sem starfsemi Orkuveitunnar hefur öðlast nýtt líf á þessum sögulega og fallega stað.

Um kvöldið verður hátíðarkvöldverður í Höfða en fyrst verður borgarbúum og öðrum gestum boðið að hitta forsetahjónin á Kjarvalsstöðum, þar sem boðið verður upp á fjölbreytt skemmtiatriði fyrir alla fjölskylduna.


Tengdar fréttir

Myndaveisla: Frægir rithöfundar heiðruðu Gaiman

Breska sendiráðið hélt móttöku til heiðurs breska rithöfundarins Neil Gaiman. Margt var um manninn og létu ýmis þekkt andlit sjá sig en hér fyrir neðan má sjá myndir úr veislunni.

Guðni og Eliza fagna fimm­tíu árum með Karli Gústaf

Karl XVI. Gústaf Svía­konungur fagnar í dag hálfrar aldar krýningar­af­mæli og eru for­seta­hjón Íslands á­samt öðrum nor­rænum þjóð­höfðingjum í Sví­þjóð í til­efni af því. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×