Innherji

Marel réttir út kútnum vegna væntinga um minni sölu­þrýsting er­lendra sjóða

Hörður Ægisson skrifar
Mikil lækkun á hlutabréfaverði Marels að undanförnu – þau féllu um nærri tuttugu prósent í septembermánuði – hefur einkum verið drifin áfram af sölu erlendra fjárfesta í hluthafahópi fyrirtækisins samhliða oft og tíðum fremur lítilli veltu og kaupendahliðin hér innanlands verið veik.
Mikil lækkun á hlutabréfaverði Marels að undanförnu – þau féllu um nærri tuttugu prósent í septembermánuði – hefur einkum verið drifin áfram af sölu erlendra fjárfesta í hluthafahópi fyrirtækisins samhliða oft og tíðum fremur lítilli veltu og kaupendahliðin hér innanlands verið veik.

Hlutabréfaverð Marels, sem hefur verið undir stöðugum þrýstingi til lækkunar um nokkurt skeið, hækkaði skarpt við opnun Kauphallarinnar í morgun – heldur dró úr þeim verðhækkunum er leið á daginn – þegar fjárfestar vörpuðu öndinni léttar um að framboð á bréfum til sölu hjá erlendum sjóðum væri búið að klárast í bili. Hlutabréfamarkaðurinn snérist við fljótlega eftir óvænta afsögn Bjarna Benediktssonar sem fjármálaráðherra vegna aukinnar pólitískrar óvissu í augum fjárfesta.


Tengdar fréttir

Marel réttir úr kútnum við brotthvarf sjóðastýringarrisans Capital Group

Bandaríski sjóðastýringarrisinn Capital Group, sem var lengi stærsti erlendi fjárfestirinn í Marel, hefur á liðlega 20 mánuðum losað um alla hluti sína en sjóðir félagsins voru um tíma með samanlagt um 40 milljarða króna hlutabréfastöðu í íslenska fyrirtækinu. Hlutabréfaverð Marels hækkaði skarpt undir lok vikunnar vegna væntinga um að brotthvarf Capital Group úr hluthafahópnum myndi létta á stöðugu framboði bréfa til sölu í félaginu.

Þegar „ó­ró­lega deildin“ gerði byltingu í stærsta fjár­festinga­fé­lagi landsins

Eftir að feðgarnir Árni Oddur og Þórður Magnússon hafa farið með tögl og hagldir í Eyri Invest, kjölfestufjárfesti í Marel sem hefur löngum verið verðmætasta fyrirtækið í Kauphöllinni, allt frá stofnun um síðustu aldamót er fjárfestingafélagið nú á tímamótum með uppstokkun í stjórn og brotthvarfi Þórðar sem stjórnarformanns til meira en tuttugu ára. Umdeild fjármögnun Eyris undir lok síðasta árs þegar styrkja þurfti fjárhagsstöðuna reyndist afdrifarík og jók mjög stuðning hluthafa við sjónarmið minni fjárfesta í eigendahópnum, stundum nefndir „órólega deildin“, um að tímabært væri að gera gagngerar breytingar á starfsemi stærsta fjárfestingafélags landsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×