Lífið

Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2023

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Handritshöfundar skaupsins verða þau Þorsteinn Guðmundsson, Benedikt Valsson, Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi. Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir, Karen Björg Þorsteinsdóttir og Fannar Sveinsson.
Handritshöfundar skaupsins verða þau Þorsteinn Guðmundsson, Benedikt Valsson, Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi. Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir, Karen Björg Þorsteinsdóttir og Fannar Sveinsson. Instagram/skjáskot

Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson verða leikstjórar Áramótaskaupsins. Þeir eru hvað þekktastir fyrir Hraðfréttir sem voru á dagskrá fyrst á mbl.is og svo á RÚV um árabil.

Handritshöfundar skaupsins verða þau Þorsteinn Guðmundsson, sem gerði garðinn frægan með Fóstbræðrum. Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi. Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir sem mynduðu gríntvíeykið Þær Tvær. Síðust í teyminu er Karen Björg Þorsteinsdóttir, sem er ein af höfundum grínseríunnar Venjulegt fólk ásamt þeim Júlíönu Söru, Völu Kristínu og Fannari.

Júlíana Sara birti mynd af hópnum á Instagram á sunnudaginn en myndin var síðan tekin út. Samkvæmt heimildum fréttastofu er hópurinn byrjaður að vinna að handritagerð á Skaupinu.

Það er framleiðslufyrirtæki Benedikts og Fannars, Pera Production, sem framleiðir Skaupið.

Áramótaskaupið er án efa einn af stærstu sjónvarpsviðburðum ársins. Það má með sanni segja að árið 2023 hafi verið viðburðarríkt og verður fróðlegt hvernig Skaupið tekst til, en nóg er af efni til að vinna með.

Í tilkynningu frá RÚV. segir Fannar að hópurinn hafi hafið störf og stemmning í hópnum góð.

„Metnaðurinn er mikill og lofum góðu skaupi sem hentar öllum aldri,“ segir Fannar.

Undanfarin sex ár hafa þau Vala Kristín, Júlíana Sara, Karen Björg og Fannar unnið náið saman að þáttunum Venjulegt fólk og því er komin góð reynsla á það samstarf. Fannar bætir svo við að „það kemur svo ótrúleg húmorviska frá Þorsteini Guðmunds sem var í Fóstbræðrum og svo er Sveppi með sinn einstaka húmor sem slær alltaf í gegn. Það er því óhætt að segja að hér á ferð er góð blanda sem á eftir að búa til skemmtlegt skaup.“

Þetta áramótaskaup er það 57. í röðinni en það hóf göngu sína árið 1966 og hefur verið ómissandi atburður í lífi Íslendinga síðan.

Fréttin var uppfærð eftir að tilkynning barst frá RÚV.


Tengdar fréttir

Fannar og Vala orðin hjón: Fékk sér húð­flúr í staðinn fyrir hefð­bundinn giftingar­hring

Sjónvarpsmaðurinn Fannar Sveinsson og hjúkrunarfræðingurinn Valgerður Kristjánsdóttir, eða Vala eins og hún er kölluð, giftu sig síðastliðinn föstudag hjá sýslumanni. Eva Ruza og Hjálmar Örn gáfu þau aftur saman um kvöldið heima hjá Bergþóri Pálssyni og Alberti Eiríkssyni auk þess sem Björn Jörundur og Daníel Ágúst tóku lagið. Fannar ákvað að láta húðflúra á sig giftingarhringinn. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×