Viðskipti erlent

Seldu alla starf­semi í Rúss­landi á 144 krónur

Árni Sæberg skrifar
Heineken verður ekki settur á flöskur framar í Rússlandi.
Heineken verður ekki settur á flöskur framar í Rússlandi. LEX VAN LIESHOUT/EPA

Heineken, næststærsti bjórframleiðandi heims, hefur selt alla starfsemi sína í Rússlandi fyrir eina evru, það sem jafngildir tæplega 144 krónum. Hluti starfseminnar var keyptur af Íslendingum á fúlgur fjár fyrir tveimur áratugum.

Heineken tilkynnti í fyrra að fyrirtækið hefði hætt sölu Heineken bjórsins í Rússlandi og myndi hætta allri framleiðslu í landinu. 

Nú hefur það tilkynnt að kaupandi hafi fundist að allri starfseminni í Rússlandi, sem telur sjö brugghús og 1.800 starfsmenn. Kaupandinn Arnest, stór framleiðandi á sviði úðabrúsa, greiðir aðeins eina evru fyrir. Heineken gerir ráð fyrir því að heildartap af því að hætta framleiðslu í Rússlandi sé um 300 milljónir evra.

„Nú höfum við klárað brottför okkar frá Rússlandi. Nýjustu vendingar sýna fram á þær veigamiklu áskoranir sem mæta stórum framleiðslufyrirtækjum sem yfirgefa landið. Þó að ferlið hafi tekið mun lengri tíma en við höfðum gert ráð fyrir, þá tryggja þessi viðskipti lífsviðurværi starfsmanna okkar og gerir okkur kleift að yfirgefa landið á ábyrgan máta,“ er haft eftir Dolf van den Brink, framkvæmdarstjóra og stjórnarformanni Heineken.

Arnest hefur skuldbundið sig til þess að veita öllum starfsmönnunum 1.800 atvinnu til þriggja ára hið minnsta.

Hluti starfseminnar keyptur af Íslendingum

Starfsemi Heineken í Rússlandi hefur áður ratað í fréttir hér á landi. Árið 2002 keypti Heineken bruggverksmiðjuna Bravo í Sankti Pétursborg af þeim Björgólfi Guðmundssyni, Björgólfi Thor, syni hans, og Magnúsi Þorsteinssyni. Kaupverðið var um 41 milljarður króna, sem á núvirði eru um 110 milljarðar.

Mennirnir þrír högnuðust gríðarlega á sölunni og byggðu mikið viðskiptaveldi á gróðanum. Björgólfsfeðgar eignuðust meðal annars stóran hluta Landsbankans skömmu eftir söluna og Magnús flugfélagið Atlanta, ásamt hópi fjárfesta.

Björgólfur Thor er enn ríkasti Íslendingurinn.


Tengdar fréttir

Rússneska mafían fjármagni útrás?

Er það rússneska mafían sem fjármagnar útrás íslenskra kaupahéðna? Því er velt upp í hinu virta, breska dagblaði Guardian í dag. Árangur sumra Íslendinga í samkeppni við mafíuna þykir undraverður.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×