Innlent

Flæðir yfir klóakið og ráðstafanir gerðar til að bjarga skautahöllinni

Ólafur Björn Sverrisson og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa
Þau Arnþór og Linda Mjöll tóku myndir í bænum Brummunddal við vatnið Mjösa í dag.
Þau Arnþór og Linda Mjöll tóku myndir í bænum Brummunddal við vatnið Mjösa í dag. arnþór Hupfeldt

Íslendingur í Brumunddal í Noregi segir vandræðin halda áfram að hrannast upp á flóðasvæði þrátt fyrir að rigningunni hafi lokið. Í bænum Hamar flæðir nú yfir klóakið og hafa ráðstafanir verið gerðar til að bjarga skautahöllinni.

Arnþór Hupfeldt býr við vatnið Mjösa þar sem flætt hefur yfir hafnarsvæðið og inn í bæinn síðustu daga. Rætt var við hann hér á Vísi þegar hann aðstoðaði vin sinn við að bjarga helstu verðmætum úr strandbar sem hann rekur í bænum.

Óveðrið Hans hefur valdið miklum usla í suðausturhluta Noregs. Um fjögur þúsund hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Rigning hefur gengið niður en vötn halda áfram að rísa.

„Vatnið er er komið í 7,13 metra og á eftir að stíga enn þá. Flæðið í það hefur minnkað en toppurinn er ekki fyrr en annað kvöld, það þýðir 50 sentimetra ofan á það sem fyrir er,“ segir Arnþór í samtali við fréttastofu.

Vandræðin hrannast upp

Hann segir að á næsta bæ, í Hamar, séu menn því áhyggjufullir meðal annars vegna mögulegs tjóns á 20 þúsund manna skautahöll.

Arnþór Hupfeldt og Linda Mjöll.arnþór hupfeldt

„Þar hafa menn fyllt höllina með fersku vatni innan frá til að múrinn haldi við þrýstingi frá vatninu þegar það mætir höllinni. Það eru svona vandræði núna.“

Arnþór segir að ekki hafi reynt á nútíma mannvirki í flóði sambærilegu þessu.

„Nema 1995 en við erum að ná því flóði, og náum því sennilega á morgun. Þá kemur í ljós hvað gerist. Klóakstöðin í Hamar er að fara á kaf núna og þá fer allt klóak beint út í vatnið.“

„Rigningin kláraðist fyrir þremur dögum en vandræðin eru enn að hrannast upp. Þetta er komið upp fyrir hné á göngustígunum,“ segir Arnþór sem fór í sundbuxur og óð út í vatnið til að ná eftirfarandi myndum:

Arnþór náði myndum af sölubásum veitingasvæðis hafnarinnar sem eru nú á bólakafi.arnþór hupfeldt
Arnþór segir álíka flóð ekki hafi ekki hafa myndast lengi.arnþór hupfeldt
Vandræðin halda áfram að hrannast upp, þrátt fyrir að rigningunni sé lokið. arnþór hupfeldt
Arnþór segir strandgarðinn hafa verið einn þann flottasta í landinu.arnþór hupfeldt
Allt á flotiarnþór Hupfeldt
Flætt hefur yfir bekki og leiksvæði við Mjösparkenvísir

Tengdar fréttir

Reyna að bjarga verð­mætum áður en vatn flæðir yfir

Íslendingur í Brumunddal í Noregi á von á miklu tjóni vegna flóða næstu daga. Versta veðrið gekk yfir nokkru frá þeim en nú rennur vatn niður úr fjöllum og yfir bæinn. 200 milljóna skemmtigarður fer að öllum líkindum undir vatn seinni part í dag. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×