Atvinnulíf

Fyrsti vinnudagurinn eftir frí og níu góð ráð

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Jæja. Fyrsti vinnudagurinn eftir gott sumarfrí í dag. Og þá er spurning um hvernig er best að koma okkur aftur í vinnugírinn?
Jæja. Fyrsti vinnudagurinn eftir gott sumarfrí í dag. Og þá er spurning um hvernig er best að koma okkur aftur í vinnugírinn? Vísir/Getty

Jæja. Það er komið að því: Aftur til vinnu eftir frábært frí og bara það eitt að vakna fyrr á morgnana getur verið átak!

En nú er komið að því að bretta upp ermar og búa sig undir haustrútínuna.

Greinahöfundur Forbes fékk níu frumkvöðla til að gefa góð ráð fyrir fyrsta vinnudaginn. Við skulum rýna í þessi góðu ráð og sjá hvað mögulega gæti nýst okkur.

Athugið að hver og einn aðili gaf eitt ráð og því geta sum þeirra hljómað eins og endurtekning.

Samtal við nánasta samstarfsfólkið

Einn segir það nýtast sér best að byrja fyrsta vinnudaginn á samtali eða spjalli með nánasta samstarfsfólkinu. Ná þannig utan um helstu fréttirnar um það sem hefur verið að gerast á meðan þú varst í fríi.

Áður en þú byrjar þá byrjar þú á þessu…

Einn mælir með því að byrja á því að gera markmiðalista fyrir fyrstu vinnuvikuna og gera það þá þannig að allt annað bíður þar til þessi listi er tilbúin. Þetta hjálpi til við tímastjórnun því ef við erum ekki með lista, erum við kannski farin á fullt að svara tölvupóstum eða sinna verkefnum sem eru ekkert endilega þau sem eru mest áríðandi.

Vaknaðu klukkutíma fyrr fyrir sjálfan þig

Þótt það sé áskorun heilmikil áskorun fyrir marga að ætla að vakna við vekjaraklukkuna til að mæta á réttum tíma í vinnunna, segist einn aðilinn mæla sérstaklega með því að vakna klukkutíma fyrr en ella og eiga tíma fyrir sjálfan sig. Stilla sig huglægt inn á vinnudaginn í góðu næði með sjálfum sér.

80:20 reglan

Þegar þú gerir verkefnalistann þinn mælir einn ráðgjafinn með því að þú yfirfarir sérstaklega vel hvernig þú ert að forgangsraða verkefnunum og styðjist þar við 80:20 regluna sem í raun gengur út á að 80% af árangrinum sem við náum er í raun afraksturinn af 20% verkefnanna okkar.

Enginn fundur fyrsta vinnudaginn

Einn aðilinn mælir sérstaklega með því að fyrsti vinnudagurinn fari aðeins í það að ná utan um þau verkefni sem eru framundan eða í gangi og koma okkur í gírinn. Þarna er því sérstaklega mælt með því að bóka okkur ekki á neina fundi eða byrja ný verkefni, heldur frekar að deginum sé nýtt í að ná utan um verkefni, stöðu þeirra, mikilvægi og hvar í forgangsröðunina þau ættu að vera sett.

Í tvo daga heima

Þá segist einn alltaf reyna að vera heima hjá sér í tvo daga áður en sumarfríinu lýkur og vinnan hefst á ný. Með því að eiga þennan tíma heima, kemst maður svolítið inn í rútínuna, er ekki dasaður eftir ferðalag þegar að maður mætir til vinnu og svo framvegis.

Illu er best aflokið

Þá mælir einn með því að klára fyrst það sem erfiðast eða leiðinlegast er. Já, hér erum við að tala um að illu er best aflokið og þetta er því það verefni sem þú einsetur þér að því að ráðast í sem fyrsta verkefni þegar þú mætir til vinnu. Því annars hvílir það á þér áfram eins og mari eða jafnvel kvíði, sem hægir á öllu öðru í skilvirkni, ánægju og svo framvegis.

Enginn fundur fyrr en eftir hádegi

Einn segist leggja áherslu á að bóka enga fundi fyrr en í fyrsta lagi eftir hádegi á fyrsta vinnudegi. Nýta morguninn í að gera verkefnalistann, svara tölvupóstum ef þeir eru áríðandi og svo framvegis.

Einn biti í einu en ekki fíllinn í heilu lagi

Loks bendir einn aðilinn á að fara bara rólega af stað og ætla sér ekki um of á fyrsta degi. Þótt það sé stress og mikið að gera eða mörg verkefni sem bíði, sé mikilvægt fyrir okkur sjálf að gefa okkur smá tíma í að komast í gírinn eftir svona gott frí. Áður en þú veist af ertu kominn á fullt með ermarnar upp brettar og tíminn farinn að fljúga áfram eins og oftast er.

Þá minnum við einnig á allan tíman sem við þurfum að gera ráð fyrir fyrir ósýnulegu vinnuna okkar. Því hún er einfaldlega líka til staðar, þótt hún gleymist oft eða sé vanmetin þegar við erum að skipuleggja okkur.


Tengdar fréttir

Góð ráð fyrir verkefnalistann og forgangsröðun verkefna

Að gera góðan verkefnalista fyrir daginn getur létt á verkefnaálagi og áhyggjum eða því að gleyma að koma einhverju ákveðnu í verk. En hvernig gerum við listan og hvernig er best að forgangsraða verkefnum?





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×