Innherji

Félag Róberts minnkar stöðu sína í Lotus með sölu upp á 33 milljarða

Hörður Ægisson skrifar
Róbert Wessman, aðaleigandi Alvotech, er jafnframt stjórnarformaður taívanska lyfjafélagsins Lotus en fyrirtækið er verðmetið núna á um 350 milljarða.
Róbert Wessman, aðaleigandi Alvotech, er jafnframt stjórnarformaður taívanska lyfjafélagsins Lotus en fyrirtækið er verðmetið núna á um 350 milljarða. NASDAQ

Fjárfestingafélagið Aztiq, stærsti hluthafi Alvotech og stýrt af Róberti Wessman, hefur lokið við sölu á helmingi af nærri tuttugu prósenta hlut sínum í samheitalyfjafyrirtækinu Lotus í Taívan fyrir samtals jafnvirði um 33 milljarða króna. Hluturinn var seldur á um átta prósenta lægra verði en nam síðasta dagslokagengi Lotus. Aztiq hefur lýst því yfir að félagið áformi að leggja aukna fjármuni til að styðja við rekstur Alvotech og hefur hlutabréfaverð þess núna rétt úr kútnum og hækkað um meira en fjórðung á síðustu tveimur viðskiptadögum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×