Erlent

Bella lifnaði við í eigin jarðarför

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Ættingjum Bellu brá í brún þegar hún reis upp frá dauðum í eigin útför.
Ættingjum Bellu brá í brún þegar hún reis upp frá dauðum í eigin útför. Vísir/Getty

Syrgjendur í jarðarför aldraðrar konu í Ekvador hrukku í kút á föstudaginn var þegar hin látna lifnaði við.

 Líkvaka Bellu Montoya, sem var 76 ára gömul þegar læknir úrskurðaði hana látna í síðustu viku, hafði staðið í fimm klukkustundir. Þegar ættingjar hennar voru að færa hana í líkklæðin fyrir sjálfa jarðarförina eins og tíðkast í Ekvador tók gamla konan allt í einu andköf.

Hún er nú komin aftur á sjúkrahúsið þar sem hún liggur á gjörgæslu og heilbrigðisráðuneyti landsins hefur sett af stað rannsókn á málinu.

Samkvæmt gögnum sjúkarhússins fékk Bella hjartaáfall í síðustu viku og þegar hún brást ekki við lífgunartilraunum var hún úrskurðuð látin af lækni sjúkrahússins.

Henni var síðan komið fyrir í líkkistu á líkvöku þar sem ættingjar hennar voru samankomnir til að kveðja hana og það var þá sem hún lifnaði við.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×