Erlent

Fjöldi manna talinn af eftir að Mocha skall á Búrma

Kjartan Kjartansson skrifar
Fjöldi fólks varð innlyksa þegar sjór flæddi upp á land þegar Mocha gekk yfir í Búrma á sunnudag og mánudag.
Fjöldi fólks varð innlyksa þegar sjór flæddi upp á land þegar Mocha gekk yfir í Búrma á sunnudag og mánudag. AP/MIlitary True News Information Team

Staðfest er að sex manns hafi farist þegar fellibylurinn Mocha gekk á land í Búrma (Mjanmar) en óttast er að mannskaðinn reynist mun meiri þegar uppi verður staðið. Svo virðist sem að nágrannaríkið Bangladess hafi farið betur út úr bylnum en útlit var fyrir á tímabili.

Vindhraðinn var um 58 metrar á sekúndu þegar Mocha náði landi nærri bænum Sittew í Búrma síðdegis á sunnudag. Um miðjan dag í gær hafði bylurinn veikst og var þá skilgreindur sem hitabeltislægð. Flóðvatn var þá enn um einn og hálfur metri að dýpt sums staðar.

Neyðarástandi var lýst yfir í sautján bæjarfélögum í Rakhine-ríki þar sem stormurinn reif heilu þökin af húsum. Fólk leitaði skjól í klaustrum, musterum og skólum inni í landi.

Björgunarsveitir björguðu um þúsund manns sem voru innlyksa vegna sjávarflóða sem náðu á fjórða metra við ströndina. Auk þeirra látnu slösuðust hundruð manna. AP-fréttastofan hefur eftir leiðtoga björgunarsveitar að fólk hafi hörfað upp á húsþök eða efri hæðir. Margir hafi eytt nóttinni uppi á þaki.

Íbúar í vestanverðu Rakhine þar sem stór hópur róhingjamúslima býr segja að í það minnsta hundrað manns hafi farist og fjölda annarra sé saknað, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Skemmdir á innviðum eru sagðar aftra hjálparstarfi. Ófremdarástand ríkti fyrir í Búrma þar sem stjórnarherinn, sem sölsaði völdin í landinu fyrir tveimur árum, berst við uppreisnarhópa. Manny Muang frá Mannréttindavaktinni segir erfitt að fá áreiðanlegar upplýsingar um stöðuna í landinu eftir hamfarirnar.

Kona leitar að heillegum eigum sínum í rústum húss síns á Sankti Martins-eyju í Bangladess.AP/Al-emrun Garjon

Tók sveig fram hjá stórum flóttamannabúðum

Yfirvöld í nágrannaríkinu Bangladess gerðu um hálfri milljón manna að yfirgefa svæði við ströndina áður en bylurinn gekk á land. Sérstaklega hafði verið óttast um afdrif um milljón róhingja sem hafast við í hrörlegum flóttamannabúðum í borginni Cox's Bazar. Mocha fór hins vegar að mestu fram hjá borginni.

Engu að síður áætlar þarlendur embættismaður sem AP-fréttastofan ræddi við að um tvö þúsund íbúðarhús hafi eyðilagst og 10.000 til viðbótar skemmst á Sankti Martins-eyju og Teknaf í nágrenni borgarinnar. Enginn hafi farist en á annan tug slasast.

Mannúðarstofnanir Sameinuðu þjóðanna höfðu byrgt svæðið af hjálpargögnum áður en stormurinn gekk yfir.


Tengdar fréttir

Hundruð þúsundir flýja öflugan felli­byl

Fellibylurinn Mocha stefnir nú á strendur Bangladess og Búrma með sjávarflóðum á svæðum þar sem um tvær milljónir manna búa. Hundruð þúsundir manna hafa verið flutt af svæðinu fyrir komu bylsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×