Juventus marði Sporting | Jafnt í Þýska­landi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn Juventus fagna.
Leikmenn Juventus fagna. Jonathan Moscrop/Getty Images

Öllum leikjum kvöldsins í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar er nú lokið. Juventus vann 1-0 sigur á Sporting frá Portúgal á meðan Bayer Leverkusen og Royale Union SG gerðu 1-1 jafntefli í Þýskalandi.

Federico Gatti skoraði sigurmark Juventus á 73. mínútu í leik þar sem gestirnir voru í raun betri aðilinn. Vörn heimamanna hélt vel þrátt fyrir að Wojciech Szczęsny, markvörður liðsins, hafi þurft að fara af velli í fyrri hálfleik eftir að hafa fundið fyrir óreglulegum hjartslætti. 

Það erþó í lagi með markvörðinn. Hjartað var skoðað eftir að hann kom af velli og sagði Szczęsny sjálfur í viðtali eftir leik að allt væri í lagi.

Í Þýskalandi gerðu Victor Boniface gestunum yfir en Florian Wirtz jafnaði metin, lokatölur 1-1.

Önnur úrslit voru þau að Feyenoord vann 1-0 sigur á Roma og Manchester United henti frá sér unnum leik gegn Sevilla, lokatölur á Old Trafford 2-2.

Úrslitin í 8-liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu voru eftirfarandi:

  • Gent 1-1 West Ham United
  • Anderlecht 2-0 AZ Alkmaar
  • Basel 2-2 Nice
  • Lech Poznan 1-4 Fiorentina

Síðari leikirnir í 8-liða úrslitum bæði Evrópu- og Sambandsdeildarinnar fara fram eftir slétta viku.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira