Fótbolti

Þor­steinn valdi þrjá ný­liða fyrir mikil­væga leiki

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katla Tryggvadóttir er einn af þremur nýliðum í íslenska hópnum.
Katla Tryggvadóttir er einn af þremur nýliðum í íslenska hópnum. Getty/Harry Murphy

Ný nöfn eru í íslenska landsliðshópnum fyrir risaleiki í undankeppni EM kvenna í fótbolta. Cecilía Rán Rúnarsdóttir snýr líka til baka í landsliðið.

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, tilkynnti í dag hópinn sinn fyrir mjög mikilvæga leiki í undankeppni Evrópumótsins. Þorsteinn gerir fjórar breytingar á hópnum frá síðasta verkefni sem voru leikir á móti Póllandi og Þýskalandi í sömu keppni.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir snýr aftur í hópinn og nýliðarnir Kristín Dís Árnadóttir, Katla Tryggvadóttir og Emilía Kiær Ásgeirsdóttir eru valdar í hópinn. Kristín Dís kom inn í hópinn um tíma í síðasta verkefni en var send aftur til baka þegar meiðsli Sædísar Rúnar Heiðarsdóttur voru ekki eins alvarleg og haldið var. Nú er Sædís hins vegar frá vegna meiðsla.

Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving, Lára Kristín Pedersen, Bryndís Arna Níelsdóttir og Sædís Rún detta út úr hópnum.

Ísland og Austurríki eru bæði með þrjú stig og eitt mark í plús eftir tvær fyrstu umferðirnar í riðlinum. Þjóðverjar eru á toppnum með fullt hús. Tvö efstu liðin tryggja sér sæti í úrslitakeppni EM 2025.

Leikirnir við Austurríki gætu ráðið miklu um það hvort liðið nái þessu eftirsótta öðru sæti. Fyrri leikurinn fer fram í austurríski borginni Ried im Innkreis 31. maí en sá síðasti á Laugardalsvellinum 4. júní næstkomandi.

Nýliðinn Katla Tryggvadóttir hefur verið að gera frábæra hluti á fyrsta tímabili sínu sem atvinnumaður en hún skipti yfir í sænska liðið Kristianstad fyrir þetta tímabil.

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir kemur inn í landsliðið í fyrsta sinn er hún er nítján ára leikmaður Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni. Hún á íslenska föður en danska móður. Emilía, sem er sóknarmaður, hefur verið valin í úrtakshópa hjá yngri landsliðum Íslands en eftir að hún flutti til Danmerkur þá hefur hún leikið með yngri landsliðum Dana.

Markvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir er aftur byrjuð að æfa með Bayern München eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Hún kemur strax aftur inn í hópinn.

Agla María Albertsdóttir hefur spilað mjög vel með Breiðabliki í Bestu deildinni í sumar en hún er utan landsliðshópsins alveg eins og síðast.

  • Landliðshópurinn:
  • Telma Ívarsdóttir - Breiðablik - 11 leikir
  • Fanney Inga Birkisdóttir - Valur - 3 leikir
  • Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Bayern Munich - 11 leikir
  • Guðný Árnadóttir - Kristianstads DFF - 28 leikir
  • Ingibjörg Sigurðardóttir - MSV Duisburg - 61 leikur
  • Glódís Perla Viggósdóttir - Bayern Munich - 124 leikir, 10 mörk
  • Guðrún Arnardóttir - FC Rosengård - 37 leikir, 1 mark
  • Natasha Moraa Anasi - Brann - 5 leikir, 1 mark
  • Kristín Dís Árnadóttir - Bröndby
  • Sandra María Jessen - Þór/KA - 40 leikir, 6 mörk
  • Berglind Rós Ágústsdóttir - Valur - 9 leikir, 1 mark
  • Alexandra Jóhannsdóttir - ACF Fiorentina - 43 leikir, 5 mörk
  • Hildur Antonsdóttir - Fortuna Sittard - 14 leikir, 1 mark
  • Katla Tryggvadóttir - Kristianstads DFF
  • Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Bayer Leverkusen - 39 leikir, 9 mörk
  • Selma Sól Magnúsdóttir - 1. FC. Nürnberg - 38 leikir, 4 mörk
  • Amanda Jacobsen Andradóttir - Valur - 19 leikir, 2 mörk
  • Ásdís Karen Halldórsdóttir - LSK Kvinner FK - 1 leikur
  • Sveindís Jane Jónsdóttir - VfL Wolfsburg - 36 leikir, 10 mörk
  • Hlín Eiríksdóttir - Kristianstads DFF - 36 leikir, 5 mörk
  • Emilía Kiær Ásgeirsdóttir - FC Nordsjælland
  • Diljá Ýr Zomers - OH Leuven - 13 leikir, 2 mörk
  • Ólöf Sigríður Kristinsdóttir - Breiðablik - 6 leikir, 2 mörk



Fleiri fréttir

Sjá meira


×