Innlent

Kemur til greina að lengja enn frekar fæðingarorlof

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Ásmundur Einar Daðason, barnamálaráðherra, mun á vordögum ráðast í endurskoðun á leikskólalögum. Taka þurfi betur tillit til barnanna sjálfra í þeirri vinnu.
Ásmundur Einar Daðason, barnamálaráðherra, mun á vordögum ráðast í endurskoðun á leikskólalögum. Taka þurfi betur tillit til barnanna sjálfra í þeirri vinnu. Vísir/Egill

Barnamálaráðherra boðar endurskoðun leikskólalaga og til greina komi að lengja fæðingarorlof. Foreldrar og börn mættu enn á ný í Ráðhús Reykjavíkur í dag til að pressa á borgarstjórn að leysa úr leikskólavandanum.

Ásmundur Einar Daðason, barnamálaráðherra segist ekki hafa áhyggjur af því að sveitarfélögum takist ekki að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla - þeim muni að lokum takast það. Hann mun á vordögum hefja vinnu við endurskoðun á leikskólalögum þar sem barnið sjálft verður í forgrunni.

„Þessi langi vinnudagur sem þau eiga, kannski upp undir 9 tíma vinnudagur barna sem eru 12 mánaða gömul og síðan er staðreyndin sú, sem við sjáum í rannsóknum sem hafa verið gerðar, að 60-70 prósent leikskólakennara ná ekki að mynda augnasamband við þessi börn yfir daginn.“

Ásmundur segir að taka þurfi málaflokkinn í heild til endurskoðunar sérstaklega samspil skólakerfis og vinnumarkaðarins. Hann mun kalla alla þá aðila að borðinu sem tengjast málaflokknum.

„Það er ekki gert til þess að bregðast við stöðunni í einstaka sveitarfélögum heldur til þess að taka þennan málaflokk út frá þessum ólíku sjónarmiðum og reyna að ná betur utan um líf barna og þar með barnafjölskyldna á þessum fyrstu árum lífsins sem sannarlega eru mikilvægust.“

Er ein af lausnunum að lengja enn frekar fæðingarorlofið?

„Já, það þarf að vera samspil þarna á milli. Við höfum verið í samtali við félagsmálaráðuneytið. Það var auðvitað lengt mikið fæðingarorlofið á síðasta kjörtímabili, það var tvöfaldað að umfangi kerfið og það þarf að halda áfram þar.“

Vill setja pressu á borgarfulltrúa

Lítil börn settu svip á borgarstjórnarfund í dag þar sem leikskólamál voru til umræðu en foreldrar mættu á fundinn til að skapa pressu á að leyst verði úr leikskólavandanum.

Thelma Björk Wilson er ein þeirra sem skipulagði mótmælin. „Ég vona að þau [borgarstjórn] svitni örlítið við að hér séum við að pressa svona á þau. Mér finnst ótrúlegt að aðeins minnihlutinn hefur haft samband við mig og aðra foreldra. Enginn úr meirihlutanum hefur haft samband.“

Foreldrar séu opnir fyrir flestum tillögum - málið þurfi einfaldlega að leysast.

„Þetta er náttúrulega bara óviðunandi. Mér finnst bara að við höfum verið plötuð. Kjörtímabil eftir kjörtímabil er lofað öllu fögru sem er síðan bara ekkert hægt að standa við,“ segir Thelma.


Tengdar fréttir

„Því miður er ekkert sér­stak­lega bjart yfir mér“

Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segist vonsvikin yfir því að staðan í leikskólamálum sé jafnslæm og raun beri vitni. Hún vill fjölga leikskólaplássum og lagði fram tillögu í borgarráði í dag um daggæslu fyrir börn starfsmanna á stærri vinnustöðum.

„Ég sé ekki fram á það verði gert neitt fyrir fólk eins og okkur“

Fjögurra manna fjölskylda neyddist til að flytja úr íbúð sinni og leigja hana út til að ná endum saman, þar sem yngsta barnið kemst ekki inn á leikskóla. Foreldrar segja nóg komið af innantómum yfirlýsingum og krefjast tafarlausra aðgerða. Mótmæli hafa verið boðuð á ný í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×