Innlent

Lærði fljótt að Sólveig „hafði rétt fyrir sér“

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Ólöf Helga Adolfsdóttir bauð sig fram til embættis formanns Eflingar í febrúnar en beið þar lægri hlut.
Ólöf Helga Adolfsdóttir bauð sig fram til embættis formanns Eflingar í febrúnar en beið þar lægri hlut. Vísir/Vilhelm

Þegar Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Viðar Þorsteinsson, þáverandi framkvæmdastjóri, gengu út hjá félaginu í október 2021 fékk Ólöf Helga Adolfsdóttir, ritari Eflingar, óumbeðna kennslustund frá Viðari um það hvernig hún ætti að haga sér sem nýr varaformaður.

Frá þessu segir Ólöf Helga í Dagmálum á mbl.is, að því er fram kemur í Morgunblaðinu.

Ólöf Helga segir Viðar hafa hringt í sig á þessum tíma og sagt „að ég verði að hringja í Sólveigu, annars eigi ég mér enga framtíð í verkalýðsbaráttu,“ segir Ólöf Helga.

„Maður lærði fljótt að Sólveig „hafði rétt fyrir sér“,“ segir Ólöf Helga um það þegar hún  hóf þátttöku í störfum Eflingar, fyrst í samstarfi við Sólveigu Önnu. Hún segir að í upphafi hafi þær oft verið sammála en hún telji sig vera í fullum rétti með að segja það þegar hún sé ósammála.

Eins og þekkt er orðið hefur andað köldu milli Sólveigar og Ólafar Helgu síðustu misseri. 

Ólöf Helga bauð sig fram gegn Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni VR, til forsetaembættis ASÍ og þá var hún ósammála þeirri ákvörðun að slíta viðræðum Eflingar við Samtök atvinnulífsins.

Hún var einnig gangrýnin á hópuppsögn starfsmanna Eflingar, sem ráðist var í eftir að Sólveig Anna var aftur kjörinn formaður. 

Í Dagmálum sagði Ólöf Helga að það hefðu fyrst farið að renna á hana tvær grímur eftir að hún var fyrst kjörin í stjórn Eflingar og starfsmenn fóru að kvarta undan hegðun Viðars.

„Þá fann ég alveg strax að það var ekki velkomið. Það var gert lítið úr spurningunni minni, mér var látið líða eins og ég væri vitlaus að spyrja og að ég væri að grafa undan starfi Viðars og Sólveigar með spurningum mínum.“

Sólveig Anna hefur fyrir sitt leiti kallað Ólöfu Helgu „veruleikafirrta“ og „valdsjúka“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×