Erlent

Á sjöunda hundrað undir grun um landráð í Úkraínu

Heimir Már Pétursson skrifar
Tölur eru á reiki um fjölda fallina úkraínska hermanna frá því innrásin hófst en þeir skipta þúsundum.
Tölur eru á reiki um fjölda fallina úkraínska hermanna frá því innrásin hófst en þeir skipta þúsundum. AP/Efrem Lukatsky

Forseti Úkraínu segir rúmlega 650 mál gegn starfsmönnum saksóknara, Öryggisþjónustunnar og annarra stofnana vegna landráðs hafa verið skráð. Forsetinn rak ríkissaksóknara og yfirmann leyniþjónustunnar í gær vegna gruns um samstarf þeirra við rússneska innrásarliðið. Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins funda í dag um hertar refsiaðgerðir gegn Rússum.

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu.AP/Forsetaembætti Úkraínu

Volodymyr Zelenskyy forseti Úkraínu greindi frá brottrekstri Irynu Venediktova ríkissaksóknara og Ivans Bakanov yfirmanns Öryggisþjónustu Úkraínu í daglegu ávarpi sínu til þjóðarinnar í gærkvöldi. Skráð hefðu verið mál gegn 651 starfsmanni þessara stofnana og annarra lögregluembætta vegna gruns um samstarf við innrásarlið Rússa og landráð.

„Hundrað níutíu og átta hafa verið upplýst um grunsemdir gegn þeim. Alveg sérstaklega 60 starfsmenn embættis saksóknara og Öryggisþjóunustunnar sem hafa dvalið áfram á herteknum svæðum og vinna gegn hagsmunum Úkraínu,“ sagði Zelenskyy.

Fyrir utan mannfall almennra borgara og hermanna hefur innrásarher Rússa valdið gífurlegri eyðileggingu víðs vegar um Úkraínu. Hér er íbúi í Kharkiv héraði að leita í rúsum heimilis síns.AP/Evgeniy Maloletka

Sérstaka athygli vekur að Ivan Bakanov yfirmaður Öryggisþjónustunnar hefur verið persónulegur vinur Zelenskyys í langan tíma samkvæmt fréttum í úkraínskum fjölmiðlum. Forsetinn sagði einstaklega ósmekklegt að Rússar hefðu hótað Úkraínu dómsdegi í gær, sama dag og þess væri minnst þegar rússneskir uppreisnarmenn í Donbas grönduðu farþegaþotu Malaysian Airlines með 298 manns innanborðs með rússneskri eldflaug fyrir átta árum. Þeir sem fórust hafi verið frá tíu þjóðríkjum og þar af 80 börn.

Forsetinn sagði að þetta sýndi að Rússland hefði þegar árið 2014 verið hryðjuverkaríki. Þessi kaldhæðnu ummæli dæmdu sig sjálf og færðu Rússa nær óumflýjanlegum réttarhöldum fyrir alþjóða stríðsglæpadómstólnum. Dómsdagurinn yrði þeirra.

Hert á refsiaðgerðum

Utanríkisráðherrar 27 aðildarríkja Evrópusambandsins funda um hertari refsiaðgerðir gegn Rússum í dag. Gabrielus Landsbergis utanríkisráðherra Litháen er lengst til vinstri á myndinni.AP/Virginia Mayo

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins komu saman í Brussel í morgun til að ræða hvernig tryggja megi betur að þegar samþykktar refsiaðgerðir gegn Rússum virki og til að ræða bann við innflutningi á rússnesku gulli. En gull er ein mikilvægasta útflutningsafurð Rússa á eftir olíu og gasi.

Gabrielius Landsbergis utanríkisráðherra Litháen minnti á að þótt stofnanir sambandsins væru á leið í sumarfrí, tækju Rússar ekkert frí frá látlausum árásum sínum á saklausan almenning í Úkraínu.

„Þess vegna er ég glaður að í dag munum við ræða enn frekari fjárhagslegan stuðning við Úkraínumenn þannig að þeir geti keypt viðbótarvopn við þau vopn sem við og vestrænir samstarfsaðilar hafa þegar getað útvegað þeim. Þetta er það sem hefur hjálpað Úkraínumönnum til að stöðva allsherjar innrás Rússa í land þeirra,“ sagði Landsbergis.


Tengdar fréttir

Fjármagna áfram hernað Pútíns

Tekin var loks ákvörðun fyrir rúmum mánuði síðan af hálfu Evrópusambandsins um það að draga úr olíukaupum ríkja þess frá Rússlandi, meira en þremur mánuðum eftir að rússneski herinn réðist inn í Úkraínu. Olíukaupunum verður þó ekki hætt heldur er stefnt að því að draga úr þeim um 90% fyrir næstu áramót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×