Erlent

Biðu á ganginum í meira en klukkustund þrátt fyrir skothljóð úr kennslustofunni

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögregluþjónar réðust til atlögu gegn árásarmanninum og skutu hann til bana rúmlega klukkustund eftir að þeir mættu á staðinn.
Lögregluþjónar réðust til atlögu gegn árásarmanninum og skutu hann til bana rúmlega klukkustund eftir að þeir mættu á staðinn.

Myndbönd úr öryggismyndavélum skóla í Uvalde í Texas, þar sem ungur maður skaut nítján börn og tvo kennara til bana í maí, sýna lögregluþjóna hörfa frá árásarmanninum og bíða á göngum skólans í meira en klukkustund.

Héraðsmiðillinn Austin American Statesman birti í gær myndband úr upptökum öryggismynda í skólanum. Þar má meðal annars sjá þegar árásarmaðurinn keyrir útaf veginum nærri skólanum og skýtur á tvo menn sem nálguðust hann. Þar má einnig heyra kennara hringja á Neyðarlínuna og sjá árásarmanninn koma inn í skólann.

Einn nemandi sem sá árásarmanninn á leið inn í kennslustofurnar hefur verið gerður óþekkjanlegur og þá hafa öskur barna úr skólastofunum þar sem árásarmaðurinn myrti 21 barn og kennara verið fjarlægð af myndbandinu.

Skothríðin heyrist þó greinilega en hún stóð yfir í nokkrar mínútur.

Myndbandið sýnir einnig hvernig lögregluþjónar komu inn í skólann og nálguðust skólastofurnar. Þeir hörfuðu þó þegar árásarmaðurinn skaut á þá og biðu með að gera aðra atlögu í rúma klukkustund. Jafnvel þó börn sem þóttust vera dáin í skólastofunum voru að hringja í Neyðarlínuna og það að árásarmaðurinn skaut fleiri skotum meðan lögregluþjónarnir voru fyrir utan.

Sjá einnig: Leita svara um hæg viðbrögð lögreglunnar í Uvalde

74 mínútum eftir að lögregluþjónar mættu á vettvang réðust þeir til atlögu gegn árásarmanninum og skutu hann til bana.

Statesman birti óklippta útgáfu af myndbandinu á Youtube, sem sjá má hér að neðan.

Viðbrögð lögreglunnar í Uvalde hafa vakið mikla reiði meðal foreldra og annarra sem að málinu koma. Yfirmaður almannavarna í Texas hefur meðal annars lýst viðbrögðunum sem „ömurlegu klúðri“ og sagt að lögregluþjónar hefðu átt að fella árásarmanninn um leið og þeir mættu á vettvang.

Sjá einnig: Hefðu átt að stoppa byssumanninn eftir þrjár mínútur

Myndband Statesman hefur vakið töluverða reiði en auk þess að sýna aðgerðarleysi lögregluþjóna í meira en klukkustund, sýnir það meðal annars lögregluþjóna skoða síma sína og setja sótthreinsiefni á hendur sínar.

Gagnrýna birtinguna

CNN segir embættismenn í Uvalda og fjölskyldumeðlimi fórnarlamba þó hafa gagnrýnt birtingu myndbandsins. Enginn af þeim hafi séð það áður en það hafi verið birt og það sé erfitt fyrir þau að sjá myndbandið og heyra skothríð árásarmannsins.

Manny Garcia, ritstjóri Statesman, birti grein þar sem hann varði ákvörðunina um birtingu myndbandsins. Þar segir Garcia að ákvörðunin hafi ekki verið tekin án umhugsunar. Hann sagði myndbandið hluta af sögunni og að gagnsæi og fréttaflutningur sem þessi væri leið til að ná fram breytingum.

„Þessi harmleikur hefur verið enn verri vegna breytinga í frásögnum, hetjusögum sem reyndust ósannar og tafa við afgreiðslu eða hafnanir beiðna um upplýsingar frá lögreglu, embættismönnum eða stjórnmálamönnum,“ skrifaði Garcia meðal annars.


Tengdar fréttir

Skóla­byggingin í Uvald­e verður rifin

Bæjarstjórinn í Uvalde, bænum þar sem byssumaður myrti nítján börn og tvo kennara á dögunum, segir að skólinn þar sem ódæðið var framið verði rifinn.

Kennari í Uvalde segir lögreglumenn „raggeitur“

Lögreglumenn sem biðu í klukkustund áður en þeir létu loks til skarar skríða á meðan byssumaður myrti nítján börn og tvo kennara í bænum Uvalde í Texas eru „raggeitur“, að sögn kennara sem særðist í árásinni. Hann segist aldrei geta fyrirgefið lögreglunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×