Innlent

Mikil vinna fram­undan áður en nýja hverfið rís

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Reiknað er með að nýja hverfið rísi innan rauðu útlínunnar norðan og vestan við Leirtjörn.
Reiknað er með að nýja hverfið rísi innan rauðu útlínunnar norðan og vestan við Leirtjörn. Egill Aðalsteinsson / Kristján Jónsson

Þrjú hundruð og sextíu íbúðir munu rísa í nýju hverfi við Leirtjörn í Úlfarsárdal en mikil vinna er framundan við deiliskipulag. Formaður borgarráðs segir mikilvægt að ryðja land undir ný hverfi samhliða þéttingu byggðar.

Skipulagslýsing hverfisins er nýsamþykkt í umhverfis- og skipulagsráði en svæðið sem er undir í Úlfarsárdalnum er um 8,6 hektarar. Áður en hægt verður að byrja að byggja þarf þó að kortleggja hvort sprungur séu á svæðinu, auk þess sem klára þarf deiliskipulag. Það verður umfangsmikið verkefni sem ljúka á næsta vor.

„Það er gert ráð fyrir um 360 íbúðum á þessu svæði, þannig að þetta er nýtt hverfi. Þetta er blönduð byggð, bæði fjölbýlishús, rað-, par og einbýlishús og atvinnustarfsemi eftir atvikum. Það er mjög mikilvægt að byrja þetta ferli því það er tímafrekt,“ segir Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs.

Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og starfandi borgarstjóri í fjarveru Dags B. Eggertssonar.Vísir/Egill

Í nýja hverfinu er jafnframt reiknað með möguleika á hjúkrunarheimili, þjónustukjörnum eða leikskóla. Einar treystir sér ekki til að spá fyrir um hvenær framkvæmdir hefjist en meigináhersla meirihlutans sé eftir sem áður að flýta allri uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í þeirri húsnæðiskrísu sem nú ríkir.

„Það var stefna Framsóknar að styðja við áframhaldandi þéttingu borgar þar sem innviðir leyfa en líka að ryðja land og byggja ný hverfi og þetta er hluti af því. En líka að hefja skipulagningu við Keldnalandið sem liggur mikið á að koma í gang. Svo eru lóðir uppi á Kjalarnesi sem þarf að ryðja,“ segir Einar.

„En þéttingin, þar eru lóðirnar sem eru lengst komnar og þess vegna verðum við að halda áfram með þær. Og það er líka skynsamlegt, þar eru skólar og leikskólar og innviðir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×