Erlent

Erfitt að út­­skýra fyrir börnunum hatrið sem drífur menn til að drepa fólk

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Dagný býr í Fredrikstad, um hundrað kílómetra suður af Osló, ásamt eiginkonu sinni og tveimur dætrum.
Dagný býr í Fredrikstad, um hundrað kílómetra suður af Osló, ásamt eiginkonu sinni og tveimur dætrum. Aðsend

Samkynhneigð kona segir árás á hinsegin-skemmtistað í miðborg Óslóar vera árás á allt hinsegin samfélagið. Erfitt hafi verið að útskýra fyrir börnum hennar að einhver hataði hana svo mikið, fyrir það eitt að vera samkynhneigð, að hann væri tilbúinn til að drepa fólk.

Þúsundir söfnuðust saman við ráðhús Oslóborgar í gær til að mótmæla ofbeldi gegn hinsegin fólki og minnast þeirra sem létust í skotárás á skemmtistaðinn London Pub á laugardag. Tveir létust í árásinni og tuttugu og einn særðist. Til stóð að árleg Gleðiganga færi fram í borginni á laugardag en hún var blásin af að ósk lögreglu. Engu að síður gengu þúsundir manna í sjálfsprottinni göngu. Skipuleggjendur ætluðu einnig að hafa göngu í gær en hættu við vegna áskorana lögreglu en engu að síður komu þúsundir saman við ráðhúsið.

Dagný býr í Fredrikstad, um hundrað kílómetra suður af Osló, ásamt eiginkonu sinni og tveimur dætrum. Hún segir það hafa snortið sig að sjá fólk safnast saman í gær.

„Það er bara æðislegt. Þetta er gert í fleiri bæjum í Noregi. Það var líka í Sarpsborg og verður á morgun í Fredrikstad. Við ætlum að fara á morgun og ganga, til að sýna að Noregur er gott land og við treystum á það. En því miður gerast svona hlutir.“

Hinsegin samfélagið í Noregi hefur tekið höndum saman eftir árásina, minnst þeirra sem létust í árásinni og fordæmt ofbeldi gagnvart hinsegin fólki.EPA-EFE/Martin Solhaug Standal

Skiljanlega hefði lögregla viljað koma í veg fyrir að fólk safnaðist saman af ótta við frekari ódæði.

„En við megum ekkert gefast upp. Við verðum að vera sýnileg.“

Dagný segir það hafa verið erfitt að útskýra árásina fyrir dætrum hennar. 

„Að það er einhver manneskja sem hatar okkur svo mikið að hún fer að skjóta bara einhvern. Bara því hann er á móti þér. Þetta þurfti ég að útskýra fyrir börnunum mínum. Það er hræðilegt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×