Innlent

Tókust á um lóðarúthlutun á landi innan flugvallargirðingar

Kristján Már Unnarsson skrifar
Landið telst enn flugvallarsvæði og óviðkomandi er bannaður aðgangur.
Landið telst enn flugvallarsvæði og óviðkomandi er bannaður aðgangur. Sigurjón Ólason

Átök urðu á fundi borgarráðs Reykjavíkur í dag um þá tillögu borgarstjóra að úthluta fimm þúsund fermetra lóð og byggingarrétti fyrir allt að 140 íbúðir við Einarsnes 130. Lóðin er núna innan flugvallargirðingar í svokölluðum Nýja Skerjafirði á svæði sem Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra lýsti yfir í gær að borgin fengi ekki afhent meðan ekki væri kominn betri flugvallarkostur í stað Reykjavíkurflugvallar.

Tillagan var samþykkt með fjórum atkvæðum meirihlutans, fulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna, gegn þremur atkvæðum minnihlutans, fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Áheyrnarfulltrúar Sósíalistaflokksins og Miðflokksins lýstu einnig andstöðu í bókun en málið fer núna til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar.

„Rétt er að benda á að uppbygging í „Nýja Skerjafirði“ er í algeru uppnámi. ISAVIA og innviðaráðherra telja að nýtt íbúðahverfi í Skerjafirði skerði rekstraröryggi flugvallarins. Það er því fráleitt að hægt sé að úthluta byggingarlóðum einmitt á því svæði sem deilt er um,“ segir í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

„Hér er um stórt mál að ræða bæði hvað varðar rekstur flugvallarins og fyrirhugaða íbúðabyggð. Það er með öllu ótækt að úthluta þessu svæði á síðasta fundi borgarráðs fyrir borgarstjórnarkosningar,“ segja sjálfstæðismenn ennfremur í bókun sinni.

Borgarstjórnarmeirihlutinn er í óða önn að úthluta lóðum og byggingarrétti í Nýja Skerjafirði.Reykjavíkurborg

„Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands telur ekki tímabært að selja byggingarrétt á landi sem liggur að Reykjavíkurflugvelli eða undir Reykjavíkurflugvelli á meðan hann er í fullri notkun og jafn stór hluti af neyðarúrræði landsbyggðarinnar og nú er. Þegar um alvarleg slys er að ræða skipta mínútur sköpum.

Ennfremur teljum við mikilvægt að styðja við landsbyggðina og standa undir nafni sem höfuðborg landsins og grafa ekki undan flugvellinum og núverandi notkun hans á meðan aðrar lausnir eru ekki í augsýn,“ segir í bókun fulltrúa Sósíalistaflokksins.

Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins segir í sinni bókun að hér sé um að ræða svæði fyrir innan flugvallargirðinguna.

„Vitnað er í orð ráðherra samgöngumála sem segir að ekkert sé verið að fara að byggja í Skerjafirði þar sem flugvöllurinn er ekki á leiðinni þaðan. Enginn annar sambærilegur eða betri staður hefur fundist fyrir flugvöllinn. Er hér einhver misskilningur í gangi? Orð ráðherra og orð borgarstjóra fara ekki saman. Er verið að fara að byggja í Skerjafirði eða ekki?“ segir í bókun fulltrúa Miðflokksins.

Fulltrúar flokkanna sem mynda borgarstjórnarmeirihlutann bókuðu ekkert um málið.

Skylmingar ráðherra og borgarstjóra um Skerjafjörð mátti sjá í frétt Stöðvar 2 í gær:


Tengdar fréttir

Ráðherra neitar að afhenda landið en borgarstjóri segist hafa afsalið

Innviðaráðherra neitar borginni um að byggja í Skerjafirði og segir að hún fái ekki meira af landi Reykjavíkurflugvallar fyrr en nýr flugvallarkostur sé fundinn og uppbyggður. Borgarstjóri hafnar því að flugöryggi verði raskað og minnir á að borgin eigi landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×