Fótbolti

Frá Klepp til Old Trafford

Atli Arason skrifar
María Þórisdóttir, leikmaður Manchester United
María Þórisdóttir, leikmaður Manchester United Charlotte Tattersall/Getty Images

María Þórisdóttir og liðsfélagar í Manchester United verða í eldlínunni í ensku ofurdeildinni í dag þegar Everton kemur í heimsókn.

Foreldrar Maríu, þau Þórir Hergeirsson og Kristen Gaard eru mætt til Manchester til að fylgjast með dóttir sinni leika á Old Trafford.

María er uppalin á Klepp sem er borg í suður Noregi með tæplega 20.000 íbúa.

„Frá Klepp til Old Trafford, hverjum hefði dottið það í hug,“ skrifaði María Þórisdóttir við mynd sem hún setti á Twitter af sér og foreldrum sínum í Manchester.

Leikur Manchester United og Everton hefst klukkan 11:30 í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×