Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Kai Havertz skoraði sigurmark Arsenal í dag.
Kai Havertz skoraði sigurmark Arsenal í dag. Julian Finney/Getty Images

Arsenal vann 2-1 sigur er liðið tók á móti Everton í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Liðið þurfti á sigri að halda til að halda titilvonum sínum á lífi, en sigur Manchester City þýðir að Arsenal þarf að gera sér annað sæti að góðu.

Ljóst var að spennustigið var hátt hjá heimamönnum í Arsenal, en liðið hafði þó töluverða yfirburði framan af leik. Þrátt fyrir það voru það gestirnir í Everton sem tóku forystuna þegar Idrissa Gana Gueye skoraði frábært mark á 40. mínút, en Takehiro Tomiyasu jafnaði metin fyrir Arsenal þremur mínútum síðar og staðan því 1-1 þegar flautað var til hálfleiks.

Heimamenn í Arsenal sóttu stíft nær allan síðari hálfleikinn, en lengi vel vildi boltinn hreinlega ekki inn. Það var ekki fyrr en á 89. mínútu að Ashley Young gerðist sekur um slæm mistök í vörn Everton sem heimamenn nýttu sér og Kai Havertz kom boltanum yfir línuna eftir stoðsendingu frá Martin Ødegaard.

Niðurstaðan varð því 2-1 sigur Arsenal í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið gerði sitt, en þar sem Manchester City vann 3-1 sigur gegn West Ham á sama tíma þurfa Skytturnar að gera sér annað sætið að góðu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira