Klopp kvaddi með sigri

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jürgen Klopp stýrði Liverpool í síðasta sinn í dag.
Jürgen Klopp stýrði Liverpool í síðasta sinn í dag. Andrew Powell/Liverpool FC via Getty Images

Jürgen Klopp og lærisveinar hans í Liverpool unnu 2-0 sigur er liðið tók á móti Wolves í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Fyrr í vetur greindi Klopp frá því að þetta yrði hans síðasta tímabil við stjórnvölin hjá Liverpool og leikurinn í dag var því sá síðasti undir hans stjórn. Á tíma Klopp hjá Liverpool tókst liðinu að vinna alla þá titla sem í boði eru.

Heimamenn í Liverpool voru nokkuð lengi í gang í leik dagsins, en þeir fengu þó tækifæri til að refsa Úlfunum eftir tæplega hálftíma leik þegar Nelson Semedo fékk að líta beint rautt spjald.

Liverpool nýtti sér liðsmuninn og Alexis Mac Allister kom liðinu yfir á 34. mínútu áður en Jarell Quansah tvöfaldaði forystu liðsins sex mínútum síðar.

Þrátt fyrir urmul færa tókst heimamönnum ekki að bæta við mörkum og niðurstaðan varð 2-0 sigur Liverpool sem endar tímabilið í þriðja sæti deildarinnar með 82 stig og kveður Jürgen Klopp um leið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira