Viðskipti innlent

Arion banki hækkar óverðtryggða vexti

Eiður Þór Árnason skrifar
Höfuðstöðvar Arion banka í Borgartúni. 
Höfuðstöðvar Arion banka í Borgartúni.  VÍSIR/VILHELM

Arion banki hefur tekið ákvörðun um að hækka óverðtryggða breytilega íbúðalánavexti um 0,50 prósentustig og verða þeir 4,79%. Óverðtryggðir fastir íbúðalánavextir til þriggja ára hækka um 0,45 prósentustig og verða 5,69%.

Verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,35 prósentustig og verða 1,89%. Verðtryggðir fastir íbúðalánavextir til fimm ára lækka um 0,75 prósentustig og verða 1,49%. Þetta kemur fram á vef bankans en allar vaxtabreytingarnar taka gildi í dag, 22. febrúar. Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti um 0,75 prósentustig þann 9. febrúar. 

Breytilegir óverðtryggðir innlánavextir Arion banka hækka ýmist um allt að 0,75 prósentustig eða haldast óbreyttir. Vextir á veltureikningum haldast til að mynda óbreyttir.

Yfirdráttarvextir hækka um 0,75 prósentustig

Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 5,90%. Almennir verðtryggðir kjörvextir lækka um 0,10 prósentustig og verða 3,40%.

Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 0,75 prósentustig. Kjörvextir bílalána hækka um 0,50 prósentustig og verða 6,30%.

Að sögn Arion banka taka vaxtabreytingar útlána mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum á borð við útlánaáhættu. 

Fjármögnunarkostnaður bankans fylgi að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafi aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Stjórn Arion banka leggur til á aðalfundi í mars að greiddur verði 22,5 milljarða króna arður til hluthafa. Bankinn hagnaðist um 28,6 milljarða króna á síðasta ári.


Tengdar fréttir

Landsbankinn hækkar breytilega vexti um 0,5 prósentustig

Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hjá Landsbannkanum hækka um 0,5 prósentustig og verða 4,7 prósent. Engar breytingar hafa verið gerðar á vöxtum á verðtryggðum íbúðalánum.

Seðla­bankinn hækkar stýri­vexti um 0,75 prósentur

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,75 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr tveimur prósentum í 2,75 prósent.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×