Viðskipti innlent

Pollapönkarar kaupa hlut í elstu hljóð­færa­versluninni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Arnar og Guðni í banastuði.
Arnar og Guðni í banastuði.

Þeir Arnar Gíslason og Guðni Finnson hafa keypt sig inn í rekstur Hljóðfærahússins. Þeir vinna saman í versluninni auk þess að standa vaktina í hljómsveitum á borð við Pollapönk, Dr. Mugison, Dr. Spock, Jónas Sig og Ensími svo eitthvað sé nefnt.

Hljóðfærahúsið er rúmlega 100 gamalt en það var stofnað árið 1916 og er elsta hljóðfæraverslun landsins og veltir um um 500 milljónum á ári

„Við erum mjög spenntir fyrir þessu enda höfum við óbilandi ást á hljóðfærum og tónlist. Ástríðan keyrir okkur áfram. Við elskum að taka á móti fólki í góðum fíling og leiðbeina með hljóðfæri og innblástur. Músíkmátturinn er mikill og við trúum að tónlist sé fyrir alla og gefi öllum eitthvað. Heimurinn hefur minnkað mikið og nú er okkar helsta samkeppni internetið. Við þurfum því alltaf að vera á tánum með að eiga vöruna til, vera samkeppnisfær í verði og veita góða þjónustu. Þjónustan er það sem skilur á milli okkar og netsins. Persónuleg ráðgjöf og samtal til að finna hvað hentar hverjum og einum er svo mikils virði. Við leggjum því mest upp úr því,“ segir Arnar Gíslason, framkvæmdastjóri Hjóðfærahússins.

„Það er mikið ábyrgðarhlutverk að halda utan um þetta gamla rótgróna vörumerki. Þessi 106 ára gamla verslun er hornsteinn í íslenskri menningu. Það er okkar hlutverk að sjá til þess að verslunin þróist með tímanum og standist samkeppnina. Við höfum báðir unnið hjá versluninni í um 15 ár og á þeim tíma hefur heimurinn gjörbreyst. Við höfum verið að breyta versluninni allan tímann og höfum mikla trú á að verslunarrekstur sem þessi eigi eftir að lifa og dafna svo framalega sem hlúð er að honum með natni,“ segir Arnar. 

Hann tók við framkvæmdarstjórn fyrirtæksins í lok árs 2017. Arnar og Guðni hafa rekið fyrirtækið í sameiningu frá þeim tíma og eru nú orðnir hluthafar í rekstrinum. Á þeim tíma hefur mikill árangur náðst að sögn Arnars.

Við erum mjög stoltir af þessum árangri og teljum að hann hafi komið sem afleiðing af ást fyrir verkefninu.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×