Viðskipti innlent

Ísland fær spark í rassinn vegna reglna um leigubíla

Eiður Þór Árnason skrifar
Faraldurinn hefur haft mikil áhrif á störf leigubílstjóra. 
Faraldurinn hefur haft mikil áhrif á störf leigubílstjóra.  Vísir/Vilhelm

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) telur reglur á Íslandi um leigubílaleyfi ekki vera í samræmi við EES-samninginn. Í dag sendi stofnunin íslenskum stjórnvöldum rökstutt álit vegna brota á EES-reglum um staðfesturétt á leigubifreiðamarkaðinum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ESA. Núverandi löggjöf, sem takmarki úthlutun atvinnuleyfa fyrir leigubílaakstur á ákveðnum svæðum, geri nýjum rekstraraðilum erfitt eða jafnvel ómögulegt að komast inn á markaðinn.

„Í lögunum er sömuleiðis gert ráð fyrir að leigubílstjórar innan skilgreindra svæða séu tengdir leigubifreiðastöð og hafi leigubílaakstur að aðalstarfi. Slík takmörkun á staðfesturétt, sem jafnvel útilokar aðkomu nýrra aðila á markaðinn, dregur úr samkeppni og takmarkar nýsköpun sem leiðir til hærra verðs fyrir neytendur.“

Telur EES að löggjöfin feli í sér óréttmæta takmörkun á staðfesturétti samkvæmt 31. grein EES-samningsins. Slíkar takmarkanir séu einungis lögmætar þegar þær eru réttlætanlegar vegna brýnna almannahagsmuna. 

Ekki hreyft mótmælum

Í janúar á þessu á ári tók ESA fyrsta skrefið í meðferð samningsbrotamáls gegn Íslandi þegar formleg áminning var send stjórnvöldum með athugasemdum við lagaumhverfi leigubifreiðaksturs hér á landi.

Þá sagði eftirlitsstofnunin reglur um úthlutun atvinnuleyfa innan skilgreindra svæða ekki vera hlutlægar og hygla núverandi leyfishöfum. Þá var gerð athugasemd við að löggjöfin skyldi leyfishafa til að hafa leigubifreiðaakstur sem meginatvinnu og krefjist þess að viðkomandi sé tengdur leigubifreiðastöð.

ESA segir að íslensk stjórnvöld hafi hvorki lagt fram rökstuðning fyrir takmörkuninni á staðfesturétti á leigubifreiðamarkaðnum né gert viðeigandi ráðstafanir til að afnema þessar takmarkanir. Enn fremur hafi íslenska ríkið ekki hreyft mótmælum við því að núgildandi löggjöf um leigubílaþjónustu sé ekki í samræmi við EES-reglur.

Bregðast við athugasemdum með lagabreytingu

Til stendur að gera breytingar á löggjöf um leigubifreiðaakstur hér á landi og var frumvarp þess efnis lagt fyrir Alþingi haustið 2020. Ein af meginbreytingum frumvarpsins er að falla frá fjöldatakmörkunum atvinnuleyfa á takmörkunarsvæðum.

Þannig munu öll ákvæði sem snúa að lágmarksnýtingu atvinnuleyfis verða óþörf, svo sem skilyrðið um að um sé að ræða aðalatvinnu leyfishafa, um veitingu undanþágu vegna veikinda, orlofs og þess háttar, um tímabundna innlögn leyfa, notkun forfallabílstjóra og svo framvegis.

Frumvarpið er tilkomið vegna fyrri athugasemda ESA um að aðgangshindranir að leigubílamarkaðnum hér á landi brjóti gegn ákvæðum EES-samningsins. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×