Viðskipti erlent

Google bannar auglýsingar með loftslagsafneitun

Kjartan Kjartansson skrifar
Þeir sem dreifa upplýsingafalsi um loftslagsmál á Youtube geta ekki lengur hagnast á auglýsingasölu á miðlinum. Þá verður ekki lengur hægt að kaupa auglýsingar með röngum fullyrðingum um loftslagsvísindi.
Þeir sem dreifa upplýsingafalsi um loftslagsmál á Youtube geta ekki lengur hagnast á auglýsingasölu á miðlinum. Þá verður ekki lengur hægt að kaupa auglýsingar með röngum fullyrðingum um loftslagsvísindi. Vísir/EPA

Tæknirisinn Google hefur ákveðið að banna afneiturum loftslagsvísinda að kaupa auglýsingar í leitarvélinni og á samfélagsmiðlinum Youtube og að hagnast á auglýsingum. Ákvörðunin var tekin vegna óánægju auglýsenda með að auglýsingar þeirra birtust við slíkt efni.

Með nýju reglunum geta auglýsendur á Google og efniframleiðendur á Youtube ekki lengur hagnast á auglýsingum með efni sem stangast á við viðtekin loftslagsvísindi um tilvist og orsakir loftslagsbreytinga, að sögn vefmiðilsins Axios.

Þetta á við ef vísað er til loftslagsbreytingar sem „gabbs“ eða „svindls“, þrætt er fyrir að loftslag jarðar fari hlýnandi eða því er neitað að losun á gróðurhúsalofttegundum eða athafnir manna eigi þátt í loftslagsbreytingum.

„Auglýsendur vilja einfaldlega ekki að auglýsingar þeirra birtist við hlið þessa efnis. Útgefendur og efnisframleiðendur vilja heldur ekki að auglýsingar þar sem þessum fullyrðingum er haldið á lofti birtist á síðum þeirra eða myndböndum,“ sagði Google í yfirlýsingu um breytingarnar.

Tæknifyrirtæki og samfélagsmiðlar hafa lengi legið undir gagnrýni fyrir að leyfa alls kyns upplýsingafalsi að vaða uppi, ekki aðeins um loftslagsbreytingar. Facebook bætti við upplýsingasíðu sem er ætlað að svara fölskum upplýsingum sem er dreift á miðlinum um um loftslagsbreytingar. 

Ákvörðun Google nú er þó róttækasta aðgerðin gegn rangfærslum um loftslagsmál til þessa. Fyrirtækið segist hafa átt samráðð við sérfræðinga þegar það samdi nýju reglurnar. Þeim verður framfylgt bæði með sjálfvirkum gervigreindartólum og yfirferð starfsmanna Google.

Áfram verður hægt að selja auglýsingar með öðru efni um loftslagsmál og þá ætlar Google að gæta að samhenginu þar sem rangar upplýsingar koma fram. Þannig verða þeir sem fjalla um rangar fullyrðingar eða ræða þær ekki sviptir auglýsingatekjum. Nýju reglurnar taka gildi í næsta mánuði.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×