Skoðun

Ungt fólk – höfum áhrif!

Ungt stuðningsfólk Áslaugar Örnu skrifar

Nú stendur yfir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Í síðasta prófkjöri sama flokks voru kjósendur 35 ára og yngri aðeins 20 prósent þeirra sem mættu á kjörstað. Þetta er sláandi staðreynd í ljósi þess að prófkjör eru í grunninn persónukjör innan flokka þar sem fólk sem tekur þátt getur haft bein áhrif á það hverjir það eru sem veljast inn á þing.

Við erum ungt fólk sem ætlum að styðja Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur í fyrsta sætið – fyrirmynd og öflugan talsmann frelsis, frjálslyndis, mannréttinda og manneskju sem skilur nútímann. Sjálfstæðisflokkurinn verður að hlusta á rödd þeirra kynslóða sem nú eru að koma upp ætli hann sér áfram að eiga erindi við ungt fólk og vera sú breiðfylking sem hann segist vera. Ungt fólk verður að sama skapi að taka þátt í stjórnmálastarfi svo sjónarmið þeirra heyrist hátt og snjallt. Án ungs fólks eiga stjórnmálin nefnilega enga framtíð.

Mjög einfalt er að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Annars vegar þarf að skrá sig í flokkinn (sem hægt er að gera hér) og hins vegar þarf sá sem mætir að kjósa að hafa náð 15 ára aldri.

Áslaug Arna hefur unnið að því hörðum höndum undanfarin ár að gera samfélagið betra, einfaldara og réttlátara svo sem flestir geti gert gott úr sínu lífi. Hennar sýn er sú að stjórnmálamenn eigi að gæta þess að stjórnmálin flæki ekki líf fólks líkt og hún hefur lagt áherslu á með því að stórefla rafræn samskipti milli fólks og stofnana. Hún er staðráðin í að nýta krafta sína til þess að vinna að umbótum sem samfélagið þarf á að halda í breyttum heimi, líkt og stafrænu ökuskírteinin eru skýrt dæmi um.

Hún er fylgin sér og harðdugleg eins og best sést á undangengnum tæpum tveimur árum í dómsmálaráðuneytinu þar sem hún hefur leitt stórfelldar breytingar á málaflokkum sem brenna á undirrituðum. Til að mynda hefur Áslaug Arna lagt sérstaka áherslu á ofbeldismál og meðferð kynferðisafbrota í kerfinu, meðal annars með því að koma stafrænum kynferðisbrotum inn í hegningarlög og banna sendingu á kynferðislegu efni án samþykkis. Þá má nefna þá nýlegu breytingu að börn geti verið skráð með tvö heimili - sem er einfaldlega veruleiki margra fjölskyldna í nútímanum.

Hún hefur beitt sér fyrir frekara frjálsræði í verslun með áfengi og fyrir frelsi fólks til að velja börnum sínum nöfn.

Þó við látum okkur nægja að nefna aðeins nokkur dæmi í þessari grein er hægt að kynna sér frambjóðandann betur hér.

Við erum ungt fólk og við ætlum að hafa áhrif. Sjálfstæðisflokkurinn á sér bjarta framtíð með leiðtoga á borð við Áslaugu Örnu.

Agnes Gunnarsdóttir

Alexandra Magnúsdóttir

Andrea Gunnarsdóttir

Anna Birna Kjartansdóttir

Arna Steinunn Mathiesen

Ágústa Tryggvadóttir

Árni Svavar Johnsen

Ásdís Alís Kristjánsdóttir

Ástgeir Ólafsson

Baldvin Þór Hannesson

Birgitta Líf Björnsdóttir

Birkir Ólafsson

Birkir Snær Brynleifsson

Birta Karen Tryggvadóttir

Bjarki Már Magnússon

Bjarki Þór Guðnason

Bjarni Kristbjörnsson

Bjarni Pétur Marel Jónasson

Bryndís Björt Hilmarsdóttir

Bryndís Gunnarsdóttir

Bryndís Marta Auðunsdóttir

Dagur Steinn Sveinbjörnsson

Daníel Þorri Hauksson

Davíð Snær Jónsson

Dóra Tómasdóttir

Drífa Lýðsdóttir

Elísabet Sara Gísladóttir

Emilíanna Rut Mikaelsdóttir

Emma Íren Egilsdóttir

Eydis Arna Líndal

Eydís Helga Viðarsdóttir

Friðgeir Óskarsson

Guðjón Gunnar Valtýsson Thors

Guðjón Máni Blöndal

Guðrún Eydís Arnarsdóttir

Halla Sigrún Mathiesen

Halldór Benedikt Haraldsson

Hanna Guðrún Sverrisdóttir

Helena Guðmundsdóttir

Helena Kristín Brynjólfsdóttir

Helga Þóra Bjarnadóttir

Hilmar Freyr Kristinsson

Hjörtur Guðmundsson

Hlynur Karl Viðarsson

Hugrún Elvarsdóttir

Hörður Guðmundsson

Ingvar Smári Birgisson

Ingveldur Anna Sigurðardóttir

Ísak Helgi Tryggvason

Ísak Leon

Jarþrúður Pálmey Freysdóttir

Jenný Rebekka Jónsdóttir

Jón Axel Svavarsson

Jón Jökull Sigurjónsson

Jónína Birgisdóttir

Kamilla Farajsdóttir

Karen Nordquist

Karítas Ólafsdóttir

Karólína Ólafsdóttir

Katarina Tina Nikolic

Katrín Sigríður Þorsteinsdóttir Bachmann

Katrín Sigurðardóttir

Kári Freyr Kristinsson

Kjartan Sigurðsson

Kristín Lára Torfadóttir

Kristín Unnur Mathiesen

Kristófer Matthías Kristjánsson

Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir

Lovísa Ólafsdóttir

Magnús Orri Fjölmarsson

Magnús Sigurbjörnsson

Magnús Örn Gunnarsson

Mikael Geir Baldursson

Nanna Kristín Tryggvadóttir

Ólafur Hrafn Kjartansson

Ólafur Rúnar Kaaber

Ragnar Snæland

Ragnheiður Ugla Ocares Gautsdóttir

Rakel Diljá Tryggvadóttir

Reynir Páll Sigurðsson

Rósa Kristinsdottir

Salka Sigmarsdóttir

Selma Guðjónsdóttir

Sigurður Einarsson

Sigurgeir Jónasson

Sóldís Birta Reynisdóttir

Sóley Friðrika Hauksdóttir Maack

Sólveig Björnsdóttir

Steinunn Sveinsdóttir

Sylvía Briem Friðjónsdóttir

Sæunn Nanna Ægisdóttir

Sævar Már Gestsson

Tinna Alicia Kemp

Unnur Sif Hjartardóttir

Úlfur Þór Andrason

Valdimar Freyr Freysson

Valdís Inga Magnúsdóttir

Veronika Steinunn Magnúsdóttir

Vífill Harðarson

Viktor Pétur Finnsson

Þóra Þórðardóttir




Skoðun

Sjá meira


×