Innlent

Fáar tilkynningar um aukaverkanir vegna bóluefnis Janssen þrátt fyrir mikil veikindi

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Reiknað er með því að um 40 þúsund manns verði bólusettir í vikunni. 
Reiknað er með því að um 40 þúsund manns verði bólusettir í vikunni.  Vísir/Vilhelm

Þrátt fyrir töluverð veikindi meðal þeirra sem fengu bóluefnið frá Janssen hafa aðeins sjö tilkynningar um aukaverkanir borist Lyfjastofnun. Engar þeirra hafa reynst alvarlegar. 

Ríflega 6.500 einstaklingar voru bólusettir bóluefninu frá Janssen á miðvikudag, aðallega leik- og grunnskólakennarar. Og í gær bárust fréttir af því að erfitt væri að reynast að manna marga leikskóla vegna veikinda af völdum aukaverkana.

Klukkan 11 í gær, þegar tölur voru uppfærðar, hafði Lyfjastofnun þó aðeins borist ein tilkynning um aukaverkanir af völdum bóluefnisins en í dag voru þær orðnar sjö.

Ef marka má samfélagsmiðla var aðallega um að ræða hita, beinverki og þreytu.

Alls hafa 7.931 verið bólusettur með bóluefninu frá Janssen. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×