Golf

„Þoli ekki að segja það en aldurinn er farinn að segja til sín“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lee Westwood hefur verið lengi að og nálgast fimmtugt.
Lee Westwood hefur verið lengi að og nálgast fimmtugt. ap/Gerald Herbert

Enski kylfingurinn Lee Westwood sagði að aldurinn sé farinn að há sér eftir að hafa lent í 2. sæti á Players meistaramótinu í golfi um helgina.

Westwood var með tveggja högga forystu fyrir lokahringinn á Players. Þar gaf hann hins vegar eftir og Justin Thomas stóð uppi sem sigurvegari. Hann lék á fjórtán höggum undir pari og var einu höggi á undan Westwood.

Englendingurinn endaði einnig í 2. sæti á Arnold Palmer Invitational mótinu um þarsíðustu helgi þar sem hann var einu höggi á eftir Bryson DeChambeau.

Westwood, sem verður 48 ára í næsta mánuði, varð atvinnumaður 1993, sama ár og Thomas og DeChambeau fæddust.

„Ég þoli ekki að segja það en aldurinn er farinn að segja til sín,“ sagði Westwood eftir Players.

„Ég náði mér ekki alveg nógu vel á strik. Á laugardaginn fannst mér ég vera svolítið þreyttur og dasaður og á sunnudaginn héldu lappirnar ekki alveg. Ég barðist allan tímann og setti niður nokkur góð pútt. Ég er svolítið svekktur að vinna ekki en þú getur ekki verið ósáttur með 2. sætið á Players.“

Westwood hefur unnið 44 mót á löngum ferli. Honum hefur þó aldrei tekist að vinna risamót. Hann hefur tvisvar sinnum endað í 2. sæti á Masters og einu sinni á Opna breska meistaramótinu.


Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.


Tengdar fréttir

Justin Thomas bar sigur úr býtum á Players-meistara­mótinu í golfi

Justin Thomas gerði sér lítið fyrir og landaði sigri á Players-meistaramótinu í golfi sem fram fór um helgina. Hann nýtti sér slæman lokahring Lee Westwood og stal sigrinum. Aðeins munaði einu höggi, Thomas á 14 undir pari en Westwood á 13 undir pari.

Westwood leiðir fyrir loka­hringinn

Lee Westwood leiðir enn á Players-mótinu í golfi sem fram fer á TPC Sawgrass-vellinum í Flórída í Bandaríkjunum. Mótið er hluti af PGA-mótaröðinni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×