Viðskipti innlent

Rúrik Gísla­son leiðir knatt­spyrnu­um­fjöllun Viaplay

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Rúrik Gíslason í leik Íslands og Nígeríu á HM 2018.
Rúrik Gíslason í leik Íslands og Nígeríu á HM 2018. Vísir/Vilhelm

Rúrik Gíslason, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, mun leiða knattspyrnuumfjöllun streymisveitunnar Viaplay á Íslandi frá tímabilinu 2021/2022.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viaplay. Fyrirtækið tryggði sér nýlega rétt til að sýna frá Þjóðadeild Evrópu, undankeppni EM karla í knattspyrnu sem og Meistaradeild Evrópu, Evrópudeildina og UEFA Conference League á tímabilinu 2021/22–2023/24 en réttinum að þeim deildum er deilt með Sýn.

,,Þegar NENT Group/Viaplay tryggir sér réttindi til að sýna frá stórum knattspyrnuviðburðum líkt og tilfellið er hér, leggjum við áherslu á að byggja upp öflugt teymi til að leiða umfjöllun um þessa viðburði. Við höfum verið leiðandi í framleiðslu á íþróttaefni á Norðurlöndunum í meira en 20 ár og höfum í hyggju að vera það einnig á Íslandi. Þar sem Rúrik hefur nýlokið ferli sínum sem atvinnumaður í knattspyrnu kemur hann með ferska nálgun á viðfangsefnið, mikla þekkingu og byggir þar að auki á eigin reynslu af því að leika knattspyrnu á hæsta gæðaflokki,“ segir Kim Mikkelsen, yfirmaður íþróttamála hjá NENT í tilkynningu.

Rúrik lék með íslenska landsliðinu á HM í Rússlandi í 2018 og FCK í Meistaradeild Evrópu tímabilið 2014/15. Í tilkynningunni segir að hann sé því „að sjálfsögðu mjög spenntur að taka þátt í að færa þessar sömu keppnir heim í stofu til áhorfenda.“

„Síðan ég tók ákvörðun um að leggja skóna á hilluna hef ég verið að leita mér að spennandi og áhugaverðri áskorun. Þegar Viaplay skýrði mér frá framtíðarhugmyndum og plönum varð ég strax til í að taka þátt í þessu verkefni. Ég hlakka mikið til að verða hluti af teymi Viaplay og við ætlum að leggja allt í að færa áhorfendum heimsklassaumfjöllun um fótbolta á Íslandi. Ég tel mig hafa mikið fram að færa með reynslu minni af atvinnumennsku í fótbolta og er spenntur að leggja mitt af mörkum í skemmtilegri, grípandi og áhugaverðri umfjöllun um Meistaradeildina, Evrópudeildina, Conference League sem og leiki íslenska landsliðsins,” segir Rúrik en hann lagði skóna á hilluna í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×