Dýrt vítaklúður þegar Leicester gerði jafntefli við Palace

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vicente Guaita ver vítaspyrnu Kelechis Iheanacho.
Vicente Guaita ver vítaspyrnu Kelechis Iheanacho. getty/Sebastian Frej

Stigið var kærkomið fyrir Palace sem hafði tapað tveimur leikjum í röð með samtals tíu marka mun.

Leicester byrjaði leikinn betur og fékk vítaspyrnu á 19. mínútu. Jamie Vardy byrjaði á bekknum og það kom því í hlut Kelechis Ihenacho að taka vítið. Spyrnan var slök og Vicente Guita varði. Staðan í hálfleik var markalaus.

Á 58. mínútu kom Wilfried Zaha Palace yfir með sínu áttunda marki á tímabilinu. Hann tók þá boltann á lofti eftir sendingu Andros Townsend og kom honum framhjá Kasper Schmeichel í marki Leicester.

Eftir markið tjaldaði Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Leicester, öllu til og setti bæði Vardy og Yuri Tielemans inn á.

Pressa gestanna bar loks árangur á 83. mínútu þegar Harvey Barnes jafnaði með vinstri fótar skoti. Hann skoraði einnig í 2-2 jafntefli Leicester og Manchester United á öðrum degi jóla.

Leicester er áfram í 3. sæti deildarinnar en Palace er í því fjórtánda.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira