Erlent

Biden ætlar að tilnefna Buttigieg í embætti samgönguráðherra

Samúel Karl Ólason skrifar
Pete Buttigieg yrði fyrsti opinberlega samkynhneigði maðurinn til að sitja í ríkisstjórn Bandaríkjanna.
Pete Buttigieg yrði fyrsti opinberlega samkynhneigði maðurinn til að sitja í ríkisstjórn Bandaríkjanna. EPA/JIM LO SCALZO

Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, ætlar að skipa Pete Buttigieg í embætti samgönguráðherra Bandaríkjanna. Þetta hafa fjölmiðlar vestanhafs eftir heimildarmönnum sínum. Buttigieg, sem kallaður er Mayor Pete, því hann var borgarstjóri South Bend í Indiana, bauð sig fram til forseta í forvali Demókrataflokksins og þá gegn Biden.

Gengi Buttigieg fór fram úr væntingum sérfræðinga í fyrstu ríkjunum þar sem atkvæðagreiðsla fór fram og varð hann meðal þeirra fremstu í forvalinu. Framboð hans datt þó aftur úr þegar á leið og að endingu hætti hann og gekk til liðs við framboð Bidens.

Í kjölfarið fór Biden fögrum orðum um borgarstjórann fyrrverandi og líkti honum við látinn son sinn, Beau. Hann sagði það mesta hrós sem hann gæti veitt nokkrum manni eða konu.

Verði hann tilnefndur og staðfestur í embættið af öldungadeildarþingmönnum yrði Buttigieg fyrsti opinberlega samkynhneigði maðurinn til að sitja í ríkisstjórnarembætti í Bandaríkjunum.

Buttigieg var kosinn borgarstjóri árið 2011, þá einungis 29 ára gamall og varð hann þá yngsti borgarstjóri Bandaríkjanna í borg með fleiri en hundrað þúsund íbúa. Hann þjónaði í flota Bandaríkjanna og tók 7 mánaða leyfi frá embætti sínu árið 2014 og var sendur til Afganistan.

Buttigieg útskrifaðist úr Harvard og býr í South Bend ásamt eiginmanni sínum.

Sjá einnig: Pete Buttigieg sækist eftir tilnefningu Demókrataflokksins

Samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar hafa hagsmunasamtök LGBTQ-fólks þegar lýst yfir stuðningi við tilnefningu Buttigieg, þó hún hafi ekki verið tilkynnt opinberlega. Leiðtogar Black Lives Matter hreyfingarinnar í South Bend hafa þó lýst yfir óánægju sinni.

Leiðtogi hreyfingarinnar þar segir að Buttigieg hafi beitt lögreglunni harkalega gegn svörtu fólki í borginni. Hreyfingin hafði áður látið óánægju sína með Buttigieg ljósa í kosningabaráttunni í fyrra eftiri að svartur íbúi South Bend var skotinn til bana af hvítum lögregluþjóni.

Biden hefur heitið því að fjárfesta verulega í innviðum í Bandaríkjunum og á sama tíma draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í frétt Washington Post segir að framtíð Buttigieg í bandarískri pólitík gæti ráðist í embættinu og hvort honum muni ganga vel þar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×