Viðskipti innlent

Fylltist örvæntingu eftir fréttir dagsins

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Þröstur Jón Sigurðsson, eigandi Sporthússins.
Þröstur Jón Sigurðsson, eigandi Sporthússins.

Eigandi Sporthússins telur það mismunun að halda líkamsræktarstöðvum lokuðum til 12. janúar hið minnsta, líkt og gert er ráð fyrir í nýjum sóttvarnareglum sem taka gildi á fimmtudag. Hann segir fréttir dagsins áfall og tjónið sem af lokununum hlýst gríðarlegt.

Heilbrigðisráðherra kynnti í dag sóttvarnaaðgerðir sem gilda frá og með næsta fimmtudegi 10. desember til 12. janúar. Áfram mun samkomubann miðast við tíu manns en verslanir mega taka við allt að hundrað manns ef rými leyfir. Þá verða sundlaugar opnaðar með allt að 50 prósent leyfilegan hámarksfjölda.

„Þetta er bara áfall, ekkert annað,“ segir Þröstur Jón Sigurðsson, eigandi Sporthússins, um nýju reglurnar í samtali við Vísi. Líkamsræktarstöðvar, sem hafa verið lokaðar frá því 5. október að undanskilinni nokkurra daga hóptímaglufu í lok þess mánaðar, sitja eftir.

„Og maður vill ekki mikið segja um þetta en manni finnst þetta mismunun og á erfitt með að kyngja þessu, ég neita því ekki.“

Setur spurningamerki við tilslakanir í verslunum

Þröstur segist hafa gert sér vonir um að líkamsræktarstöðvar yrðu opnaðar um leið og sundlaugar.

„Þannig að manni bregður verulega við þetta en ég er ekki sérfræðingur á þessu sviði og kann ekki að segja hvað er rétt og hvað er rangt. En það er rosalega sérstakt að Ísland skuli vera eina landið í heiminum þar sem [farið er með] líkamsrækt eins og hún sé hættulegust af öllu.“

Þá þykir honum einkennilegt að reglur séu rýmkaðar jafnmikið í verslunum og raun ber vitni á meðan líkamsræktarstöðvar verði áfram lokaðar.

„Ég neita að trúa því að það geti verið að þeir ætli að fara að opna alls konar aðra starfsemi þar sem er leyfður talsvert meiri fjöldi, eins og í verslunum. Maður vonar auðvitað að þetta sé gert út frá gögnum og rannsóknum en manni manni finnst þetta skrýtið, maður neitar því ekki.“

Vill ekki einu sinni hugsa um skaðann

Líkamsræktarstöðvar hafa nú verið lokaðar í níu vikur og útlit fyrir að þær verði áfram lokaðar í að minnsta kosti fjórar vikur til viðbótar. Þröstur segir tjónið þegar orðið gríðarlegt og fréttir dagsins bæti hreint ekki úr skák.

„Maður vill ekki einu sinni hugsa til þess hversu miklum skaða þetta er að valda manni,“ segir Þröstur.

Salir Sporthússins hafa staðið auðir síðan 5. október.Vísir/Vilhelm

Hann nefnir þó að opnað hafi verið fyrir umsóknir um lokunarstyrki í lok síðustu viku og hann bindi vonir við að þeir hjálpi eitthvað til.

„Það er svosem ekkert komið út úr því enn þá. En við fengum enga hjálp með fyrstu lokunina sem var níu vikur í vor. Þetta er engan veginn að fara að bæta manni skaðann, hjálpar manni kannski eitthvað örlítið. En þetta fyllir mann örvæntingu, maður veit bara ekki hvað maður á að segja.“

Inntur eftir því hvort hann sjái fram á að segja upp fólkið segir Þröstur að markmiðið hafi verið að fara ekki þá leið.

„Og við erum með frábæran hóp af fólki sem vill berjast í gegnum þetta með okkur og við viljum trúa því að við þurfum ekki að fara í stórtækar aðgerðir. En svo spyr maður sig í hvað maður er tilneyddur. Því þetta er þungbært. Það er lokað í rétt rúma fimm mánuði af tólf mánuðum árið 2020. Það hlýtur að vera þungbært fyrir allan rekstur.“


Tengdar fréttir

350 starfsmenn World Class halda vinnunni

Björn Leifsson, stofnandi og eigandi World Class, ætlar ekki að segja upp þeim 350 starfsmönnum sem eru á launaskrá hjá félaginu. Björn lýsti því yfir fyrir helgi að hann lægi undir feldi vegna óvissunnar sem framundan væri vegna kórónuveirufaraldursins. Möguleiki væri að hann segði upp öllum 350 starfsmönnum World Class í dag.

Segist hafa tekið eins milljarðs króna lán

Eigandi World Class liggur undir feldi og veltir fyrir sér hvort rétt sé að segja upp 350 manns á mánudaginn. Hann segist hafa tekið eins milljarðs króna lán vegna kórónuveirufaraldursins. Ef hann ætti ekki flestar fasteignirnar sem stöðvar World Class eru reknar í, þá væri hann kominn á hausinn.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×